Frábær fimmgangskeppni – stefnir í hörku úrslit

Elvar Þormarsson og Djáknar frá Selfossi toppuðu á réttum tíma. Ljósmynd: Henk & Patty
Frábærir knapar og hestar voru skráðir til leiks í fimmgangi á heimsmeistaramótinu og sýningarnar í forkeppni eftir því. Flestir náðu að laða fram það besta í hestum sýnum og það stefnir í hörku keppni bæði í b og a-úrslitum.
Efst í fullorðinsflokki að lokinni forkeppni er Lena Maxheimer frá Þýskalandi á Abel fra Nordal með einkunnina 7,40. Í ungmennaflokki er það Tekla Petersson frá Svíþjóð á Vatnadísi från Noastallet sem leiðir með 6,90.

Lena og Abel leiða fimmgang í fullorðinsflokki. Ljósmynd: Henk & Patty
Glódís Rún Sigurðardóttir var fyrst Íslendinga í brautina á Snillingi frá Íbishóli en þetta er frumraun Glódísar í fullorðinsflokki á HM. Hún leysti sitt verkefni mjög vel og hlaut í einkunn 7,20 sem gefur henni sæti í A-úrslitum á sunnudag. Í viðtali við Eiðfaxa sagðist hún nokkuð ánægð með frammistöðuna en telur sig geta bætt í á tölti og skeiði.

Glódís og Snillingur á flugaskeiði. Ljósmynd: Henk & Patty
Þá var komið að Jóni Ársæli Bergmann og Hörpu frá Höskuldsstöðum en þau áttu góða sýningu að undanskildum erfiðleikum í niðurhægingu í seinni skeiðspretti, einkunn þeirra 6,87 sem skilar öðru sæti í ungmennaflokki og þátttökurétt í A-úrslitum. Jón sagði í samtali við Eiðfaxa að Harpa fengi nú að hvíla á morgun og þau myndi mæta fersk til úrslita í fimmgangi

Jón Ársæll og Harpa frá Höskuldsstöðum Ljósmynd: Henk & Patty
Elvar Þormarsson og Djáknar frá Selfossi virðast vera að toppa á hárréttum tíma og áttu þeir frábæra og jafna sýningu og hlutu í einkunn 7,33 og öruggt sæti í A-úrslitum. Í viðtali við Eiðfaxa sagði hann frá því að markmiðið hefði alltaf verið að toppa á þessum tímapunkti líkt og sjá má í viðtalinu hér að neðan og þakkaði dýralækninum Susanne Braun fyrir veitta aðstoð við að hafa Djáknar í toppstandi á heimsmeistaramóti

Elvar Þormarsson og Djáknar Ljósmynd: Henk & Patty
Þórgunnur Þórarinsdóttir og Djarfur frá Flatatungu stóðu sig vel í fimmgangskeppni dagsins og hlutu 6,40 í einkunn sem því miður dugði ekki til þess að komast í úrslit. Hún sagði frá því í viðtali að þetta hefði ekki gengið alveg eins og hún ætlaði en hún væri sátt við frammistöðuna.

Þórgunnur og Djarfur. Ljósmynd: Henk & Patty
Þórarinn Ragnarsson og Herkúles frá Vesturkoti voru síðastir Íslendinga í brautina og hlutu þeir í einkunn 6,83 sem skilaði þeim sæti í b-úrslitum en Þórarinn talaði um að hitinn hefði reynst þeim nokkuð erfiður þar sem orkan hefði dvínað eftir því sem á leið sýninguna.

Þórarinn Ragnarsson og Herkúles frá Vesturkoti Ljósmynd: Henk & Patty
Úrslitahestar í fimmgangi fullorðinna
# | Knapi | Hestur | Einkunn |
1 | Lena Maxheimer | Abel fra Nordal | 7.40 |
2 | Elvar Þormarsson | Djáknar frá Selfossi | 7.33 |
3 | Pierre Sandsten-Hoyos | Goðasteinn frá Haukagili Hvítársíðu | 7.27 |
4 | Glódís Rún Sigurðardóttir | Snillingur frá Íbishóli | 7.20 |
4 | Frauke Schenzel | Óðinn vom Habichtswald | 7.20 |
6 | Anne Frank Andresen | Vökull frá Leirubakka | 7.03 |
7 | Þórarinn Ragnarsson | Herkúles frá Vesturkoti | 6.83 |
8 | Caspar Logan Hegardt | Oddi från Skeppargården | 6.73 |
9 | Oliver Egli | Hákon frá Báreksstöðum | 6.67 |
10 | Carina Piber | Milljarður frá Stóra-Aðalskarði | 6.63 |
Úrslitahestar í fimmgangi ungmenna
# | Knapi | Hestur | Einkunn |
1 | Tekla Petersson | Vatnadís från Noastallet | 6.90 |
2 | Jón Ársæll Bergmann | Harpa frá Höskuldsstöðum | 6.87 |
3 | Filippa Gram | Kristall frá Skagaströnd | 6.70 |
4 | Rebecca Hesselbjerg Taulborg | Tindra fra Kirstineholm | 6.53 |
5 | Palma Sandlau Jacobsen | Búi frá Húsavík | 6.43 |