Framkvæmd reiðdómsins

  • 14. maí 2025
  • Fréttir
Kynbótasýningar 2025 - Aðsend grein eftir Þorvald Kristjánsson

Dómar á tölti og skeiði

Í dómskala kynbótahrossa hefur staðið að til að hljóta 9,0 eða hærra fyrir tölt að þá þurfi að sýna fram á að hesturinn sé sjálfberandi þegar honum er riðið í nokkrar sekúndur á slökum taumi. Það er nú búið að taka þetta út sem kröfu til hæstu einkunna og framvegis þarf ekki að sýna hestinn á slökum taumi til að fá 9,0 eða hærra fyrir tölt (einungis nefnt sem möguleiki til hækkunar). Hérna er textinn í dómskalanum er snýr að tölti eftir breytingu:

Töltið er dæmt á öllum þeim hraðastigum sem hesturinn býr yfir, þ.e. á hægri ferð, milliferð og greiðri ferð. Til þess að hljóta einkunn upp á 9,0 eða hærra er gerð krafa um að sýnd sé hraðabreyting (þ.e. greinileg uppkeyrsla og/eða niðurhæging) og að hesturinn viðhaldi þar takti, jafnvægi og mýkt. Ef sýnt er fram á að hesturinn er sjálfberandi á slökum taumi getur það haft jákvæð áhrif á einkunnina.

Þá hefur eftirfarandi vinnuregla verið við dóma á skeiði á yfirlitssýningum:

Hross, sex vetra og eldri, sem hljóta 5,0 fyrir skeið í dómi verða að skeiða upp á að lágmarki 6,5 til að hreyfa einkunn

Þessi regla hefur verið tekin út til einföldunar. Áfram er það þannig að til að hækka einkunn fyrir skeið á yfirlitssýningu verður að sýna hrossið einnig á tölti, þar sem horft er til þess að gæði töltsins séu svipuð og í dómi. Ef svo er ekki, þá verður einkunn fyrir skeið að vera að lágmarki 0,5 stigum lægri en sýning þess á yfirlitssýningunni býður upp á. Þessi vinnuregla hefur verið við lýði og heldur áfram og fær hrossið þá einkunn sem sýningin á yfirlitssýningu býður upp á óháð því hvaða einkunn hrossið fékk í dómi.

Þessi breytingar voru samþykktar á fundi ræktunarleiðtoga FEIF-landanna í byrjun febrúar og tóku gildi í vor.

Hérna koma punktar hvað reiðdóminn varðar sem gott er að hafa í huga og eru áfram í gildi:

Tölt:

Töltið er dæmt á öllum þeim hraðastigum sem hesturinn býr yfir, þ.e. á hægri ferð, milliferð og greiðri ferð.

  • Til að hljóta einkunn 9,0 eða hærra þarf einnig að sýna hraðaaukningu á tölti eða niðurhægingu til að sýna fram á jafnvægi, mýkt og taktöryggi á tölti.

Hægt tölt:

  • Fyrir hæstu einkunnir (9,0 til 10), þarf hesturinn að geta gengið upp í jafnvægisgott hægt tölt af feti.
  • 8,0 er hámarkseinkunn ef hraði og/eða skreftíðni á hægu tölti er í efstu mörkum.

Brokk:

  • Fyrir einkunnir 9,0 eða hærra fyrir brokk þarf að sýna hestinn á tveimur hraðastigum á brokki. Annaðhvort frá hægri ferð að rúmri milliferð eða frá hægri milliferð að greiðri ferð.

Skeið:

  • Til að hljóta einkunnir 8,5 og hærra þarf að hleypa hestinum greinilega til skeiðs.
  • Þá er talað um að einkunn fyrir skeið skulu lækkuð um 0,5 hið minnsta séu miklir erfiðleikar í upphafi spretts, hesturinn þurfi mikla hjálp frá knapa til að halda jafnvægi á sprettinum eða ef hesturinn styttir sig í niðurhægingu.

Samstarfsvilji:

  • Fyrir einkunnir 9,0 eða hærra skal það sýnt að hægt sé að hægja hrossið niður á fet í viðsnúningum á brautarendum. Hraðabreytingar á gangtegundum, losað um taum og annað sem sýnir þjálni og samstarfsvilja getur vegið til hækkunar á einkunn sé það vel framkvæmt af hestinum.

Yfirlitssýningar:

  • Hægt og greitt tölt á yfirlitssýningum.
    • Ef ná á einkunn 8,5 eða hærra fyrir tölt verður að sýna bæði hæga og greiða ferð á gangtegundinni á yfirlitssýningum.
  • Einkunnir fyrir samstarfsvilja er bæði hægt að hækka og lækka á yfirlitssýningum. Hvað varðar lækkun á einkunn fyrir samstarfsvilja er dómurum það leyfilegt ef hesturinn sýnir neikvæð atriði þessa eiginleika sem ekki komu fram í dómnum, t.d. augljós merki um óþjálni, ofríki, spennu eða viðkvæmni.
  • Til að hljóta hækkun fyrir samstarfsvilja á yfirlitssýningu þarf að sýna greinilega fram á að hægt sé að hægja hrossið mjúkt og átakalaust niður innan afmörkunar brautarinnar.
  • Til að hækka einkunn fyrir skeið á yfirlitssýningu verður að sýna hrossið einnig á tölti, þar sem horft er til þess að gæði töltsins séu svipuð og í dómi. Ef svo er ekki, þá verður einkunn fyrir skeið að vera að lágmarki 0,5 stigum lægri en sýning þess á yfirlitssýningunni býður upp á.
  • Til að hækka einkunn fyrir fegurð í reið verður að sýna hrossið að lágmarki bæði á tölti og brokki. Það fer svo eftir frammistöðu í dómnum hvort einnig þurfi að sýna hægt/greitt stökk og skeið. Einkunn fyrir fegurð í reið á að endurspegla frammistöðu hrossins í gegnum alla sýninguna (dóm og yfirlitssýningu) á öllum gangtegundum.

Til frekari glöggvunar er hægt að nálgast vinnureglur FEIF við kynbótadóma inn á heimasíðu RML

Hlökkum við hjá RML til samstarfsins við hestamenn í ár sem endranær og minnum á að við erum til þjónustu reiðubúin. Bestu kveðjur í bili.

Höfundur er Þorvaldur Kristjánsson, ráðunautur í hrossarækt

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar