Framundan í vikunni

Það er nóg um að vera í hestamennskunni og er þessi vika engin undantekning. Eiðfaxi ætlar að setja hér niður helstu viðburði vikunnar. Ef þú manst eftir einhverjum fleirum máttu endilega benda okkur á það.
Miðvikudagur 26. mars
- Blue Lagoon mótaröðin heldur áfram en nú verður keppt í gæðingakeppni. Mótið verður sýnt í beinni í opinni dagskrá á EiðfaxaTV, Sjónvarpi Símans og Vodafone.
- Götuleikar Dreyra þar sem keppt er í tvígangi.
Fimmtudagur 27. mars
- Samskipadeildin, áhugamannadeild Spretts, heldur áfram en nú verður keppt í fimmgangi. Mótið verður sýnt í beinni á EiðfaxaTV,
Laugardagur 29. mars
- Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum heldur áfram en komið er að skeiðmótinu. Mótið verður sýnt í beinni á EiðfaxaTV.
- Kvennatölt Borgfirðings
- Keppt verður í tölti og fimmgangi í mótaröð Þyts
- Töltmót Freyfaxa
- Dagur reiðmennskunnar og Stórsýning Fáks
Sunnudagur 30. mars
- Næsta mót í Æsku Suðurlands
- Töltkeppni í Nesoddahöllinni