Framundan í vikunni
Það er nóg um að vera í hestamennskunni og er þessi vika engin undantekning. Eiðfaxi ætlar að setja hér niður helstu viðburði vikunnar. Ef þú manst eftir einhverjum fleirum máttu endilega benda okkur á það.
Þriðjudagur 24. mars
- Búnaðarþing Bændasamtaka Íslands
- Þriðja mótið í Suðurlandsdeild Eques. Keppt verður í fimmgangi og verður mótið sýnt í beinni á EiðfaxaTV.
- Fimmgangur í Vesturlandsdeildinni
Miðvikudagur 25. mars
- Meistaradeild KS heldur áfram en komið er að gæðingalist. Mótið er sýnt í beinni á EiðfaxaTV.
- Fimmgangur í Uppsveitadeildinni
- Blue Lagoon mótaröðin heldur áfram í Samskipahöllinni en keppt verður í pollaflokk og tölti. Mótið er sýnt í beinni í opinni dagskrá á EiðfaxaTV.
Fimmtudagur 26. mars
- Fimmgangur í 1. deild Hringdu í hestaíþróttum. Mótið er sýnt í beinni á EiðfaxaTV.
- Slaktaumatölt í Meistaradeild ungmenna og TopReiter
Föstudagur 27. mars
- Lokamót Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum. Keppt verður í tölti og skeiði í gegnum höllina en mótið er sýnt í beinni á EiðfaxaTV.
Laugardagur 28. mars
- Stóðhestaveislan verður í HorseDay höllinni og hefst kl. 18:00.
- Þriðja vetrarmót Sleipnis
Sunnudagur 29. mars
- Æska Suðurlands í Rangárhöllinni. Fyrsta mótið af þremur og keppt veðrur í þrígang, fjórgang og smala.
- Folaldasýning hjá Hrossaræktarfélagi Hrunamannahrepps.
Keppnishross í Meistaradeild Líflands
Flink alhliðahross í Suðurlandsdeild Eques
Þórunn bar sigur úr býtum