Fyrsta mótið í KB-Mótaröðinni

  • 15. febrúar 2026
  • Fréttir
Gó þátttaka var í mótinu

Fyrsta mótið í KB-mótaröðinni fór fram í gær, 14. febrúar. Kaupfélag Borgfirðinga er bakhjarl mótaraðarinnar líkt og áður og er Hestamannafélagið ævinlega þakklátt fyrir þann stuðning, segir í tilkynningu frá mótshöldurum.

Um er að ræða bæði einstaklings- og liðakeppni en að þessu sinni keppa fimm lið um verðlaunin: Lið Grillhússins, Fjöllan, Hvítárliðið, Skjólbrekka – Berg og Co og Dreyrarfákar. Þrjú mót eru á dagskrá í vetur: fjórgangur, gæðingamót og tölt.

Vel var sótt á mótið og voru skráðir um 63 keppendur. Eftir fyrsta mótið stendur Lið Grillhússins efst, en liðið Fjöllan fylgir fast á eftir. Auk keppnisflokka var Pollaflokkurinn verðlaunaður, en þar voru 7 ungir og efnilegir krakkar skráðir til leiks. Það má því með sanni segja að framtíðin sé björt.

Sigurvegarar voru eftirfarandi:

Barnaflokkur: Sara Margrét H. Hauksdóttir á Þyt frá Skáney.

Unglingaflokkur: Kristín Eir Hauksdóttir á Kapteini frá Skáney.

Ungmennaflokkur: Katrín Einarsdóttir á Rödd frá Spágilsstöðum.

2. flokkur: Bryndís Gylfadóttir á Eldey frá Birkihlíð.

1. flokkur: Ámundi Sigurðsson á Emblu frá Miklagarði.

Meistaraflokkur: Benedikt Þór Kristjánsson á Tvennu frá Vogatungu.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar