1. deildin í hestaíþróttum Fyrsta stórmótið í nýrri reiðhöll Sörla

  • 9. febrúar 2026
  • Fréttir
Fjórgangur í 1.deild Hringdu - Landsliðskokkar sjá um veitingar og frítt inn í boði Ástund

Næstkomandi föstudag, þann 13.febrúar fer fram fjórgangur í 1. deild Hringdu í hestaíþróttum. Mótið markar tímamót því um er að ræða fyrsta stórmótið sem haldið er í nýrri og glæsilegri reiðhöll Hestamannafélagsins Sörla í Hafnarfirði. Búist er við hörkukeppni þar sem fábærir knapar og hestar landsins munu spreyta sig í nýju aðstöðunni.

Móshaldarar hafa lagt mikið upp úr umgjörðinni og verður veitingasalan í höndum fagmanna. Landsliðskokkarnir Sigurjón Bragi Geirsson og Sindri Guðbrandur Sigurðsson hjá Flóru munu sjá um að gestir fari ekki svangir heim og bjóða upp á veitingar af bestu gerð.

Það er verslunin Ástund sem býður öllum hestamönnum á viðburðinn og er því frítt inn á mótið. Stjórn 1. deildar Hringdu-deildarinnar hvetur hestamenn til að fjölmenna í Hafnarfjörðinn, skoða nýju höllina og njóta tilþrifa frábærra hesta og knapa.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar