Gæði og spenna í gæðingalist Meistaradeildar KS
Mette Mannseth fagnar sigri í Gæðingalist Meistaradeildar KS árið 2025. Ljósmynd: Carolin Giese
Þremur greinum af átta er lokið í Meistaradeild KS og annað kvöld, miðvikudaginn 25.mars, verður keppt í þeirri fjórðu og er það Gæðingalist. Keppt er í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki og hefst keppni klukkan 18:00, Haf og Land býður gestum frítt á mótið og þeim sem ekki eiga heimangengt gefst kostur á að horfa í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.
Fyrstu þrjú keppniskvöldin hafa verið skemmtileg og spennandi þar sem áhorfendur hafa fengið að sjá ný og spennandi keppnispör í bland við eldri og reyndari. Á því verður áframhald þegar keppt er í gæðingalist og er hestakostur knapa góður.
Eins og staðan er nú er það Vera Schneiderchen sem leiðir í einstaklingskeppninni með 22 stig en skammt á eftir henni er liðsfélagi hennar Þórarinn Eymundsson með 21 stig í þriðja sæti er svo Mette Mannseth með 15 stig. Þær Vera og Mette eru skráðar til leiks á þeim hestum sem flestum stigum hafa skilað þeim í vetur því Vera er á Feyki frá Selfossi, þau unnu keppni í fjórgangi og voru í úrslitum í slaktaumatölti. Mette er á Töfra frá Þúfum, en þau riðu bæði til úrslita í slaktaumatölti og fimmgangi. Metta er ríkjandi sigurvegari því hún og Hannibal frá Þúfum stóðu efst í sterkri keppni á síðasta ári með 8,37 í einkunn.
Í liðakeppni er það lið Hrímnis með leiðir með 194,5 stig í öðru sæti er Hofstorfan/550 með 180 stig og í þriðja sætinu er lið Þúfna með 161,5 stig.
Að þessu móti loknu má segja að línur fari að skýrst í heildarstigakeppni og því fróðlegt að fylgjast með þessum vösku knöpum takast á við keppni í gæðingalist.
Ráslisti
| Nr. | Knapi | Hestur |
| 1 | Barbara Wenzl | Loftur frá Kálfsstöðum |
| 2 | Kristófer Darri Sigurðsson | Ósk frá Narfastöðum |
| 3 | Þorsteinn Björnsson | Ugla frá Hólum |
| 4 | Erlingur Ingvarsson | Dimmalimm frá Hrísaskógum |
| 5 | Julian Veith | Hátíð frá Ísalæk |
| 6 | Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir | Þytur frá Stykkishólmi |
| 7 | Sigurður Heiðar Birgisson | Jósteinn frá Íbishóli |
| 8 | Þórgunnur Þórarinsdóttir | Fær frá Prestsbæ |
| 9 | Björgvin Helgason | Karlsberg frá Kommu |
| 10 | Mette Mannseth | Töfri frá Þúfum |
| 11 | Sigurður Steingrímsson | Rún frá Koltursey |
| 12 | Þórey Þula Helgadóttir | Kjalar frá Hvammi I |
| 13 | Ívar Örn Guðjónsson | Dofri frá Sauðárkróki |
| 14 | Vera Evi Schneiderchen | Feykir frá Selfossi |
| 15 | Lea Christine Busch | Pálmi frá Þúfum |
| 16 | Freyja Amble Gísladóttir | Grandi frá Syðri-Gegnishólum |
| 17 | Lilja Dögg Ágústsdóttir | Döggin frá Eystra-Fróðholti |
| 18 | Herdís Björg Jóhannsdóttir | Svörður frá Vöðlum |
| 19 | Herjólfur Hrafn Stefánsson | Yllir frá Reykjavöllum |
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Einvígi í vændum í Meistaradeild Líflands