Gæðingalist í Meistaradeild Líflands: Hver sigrar?

  • 6. mars 2026
  • Fréttir

Ásmundur Ernir Snorrason fagnar sigri í gæðingalist Meistaradeildar Líflands árið 2025. Ljósmynd: Carolin Giese

Ríkjandi meistarar mæta aftur til leiks í Gæðingalist

Keppni í Gæðingalist fer fram í Meistaradeild Líflands í kvöld. Keppni hefst klukkan 19:00 og býður Top Reiter áhorfendum í sal frítt inn. Mótið er í beinni á EiðfaxaTV og hefst útsending klukkan 18:30.

Svo vitnað sé beint í reglur um keppnisgreinina að þá er; Hugmyndin á bak við gæðingalist er að sýna vel þjálfaðan gæðing á listrænan hátt, með tónlist, þar sem öll þjálfunarstigin eru sýnd eins og myndin af þjálfunarpíramídanum sýnir.

Það er um að gera fyrir áhorfendur að kynna sér reglur Gæðingalistar með því að smella hér.

Þegar ráslisti kvöldsins er skoðaður kemur engum á óvart að þar séu einungis afburða pör, enda er Meistaradeild Líflands vettvangur okkar fremstu knapa og eðlilegt að þangað beinist augu allra hestaáhugamanna.

Meistararnir mæta aftur

Á síðasta ári fóru Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði með sigur af hólmi með glæsilega einkunn, 8,43. Þau eru skráð til leiks á ný og verða án efa illviðráðanleg takist þeim að endurtaka leikinn. Fast á hæla þeirra í fyrra fylgdu Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Flóvent frá Breiðstöðum með einkunnina 8,40. Þess má geta að þetta öfluga par stóð efst í greininni árið 2024 og eru þau líkleg til stórræða. Þá er einnig á ráslistanum Glampi frá Ketilsstöðum sem efstur stóð í gæðingalist í Meistaradeild Líflands árið 2023, þá setinn af Olil Amble, nú mætir Bergur Jónsson á honum sem hefur áður keppt á honum meðm góðum árangri. Þessir þrír fyrrum meistarar í greininni munu vafalaust blanda sér í toppbaráttu.

Af öðrum pörum sem voru í toppbaráttu í fyrra má nefna Jakob Svavar Sigurðsson og Hrefnu frá Fákshólum, sem höfnuðu í 6. sæti. Jakob hefur verið í fremstu röð í þessari grein um árabil og veit nákvæmlega hvað þarf til að landa sigri. Þá mæta Arnhildur Helgadóttir og Frosti frá Hjarðartúni aftur til leiks, en þau skipuðu 10. sætið á síðasta ári.

Allt getur gerst

Þótt einungis þrjú af efstu tíu pörum síðasta árs séu mætt aftur, er ráslistinn stútfullur af kunnuglegum knöpum á frábærum gæðingum. Jón Ársæll Bergmann er þar á meðal og mætir nú með sigurvegara slaktaumatöltsins Díönu frá Bakkakoti. Helga Una er á hinni fasmiklu Björt frá Kráku en þær riðu til úrslita bæði í fjórgangi og slaktaumatölti. Teitur Árnson sýnir hina reyndu Auðlind frá Þjórsárbakka en þau eru á meðal fremstu keppnispara landsins. Þá er að finna hesta sem mikla athygli vöktu á síðasta tímabili og má þar nefna Árna Björn Pálsson á Krika frá Krika, Glódísi Rún Sigurðardóttir á Vikari frá Austurási, Þorgeir Ólafsson á Aspari frá Hjarðartúni og Brynju Kristinsdóttur á Sunnu frá Haukagili í Hvítársíðu.

Líkt og dæmin sanna er fyrri árangur aldrei örugg ávísun á sigur og í hestaíþróttum geta óvæntir hlutir alltaf gerst. Allir knapar á ráslista kvöldsins tilheyra hópi okkar bestu knapa og á góðum degi eiga þeir allir raunhæfa möguleika á sigri.

Línur fara að skýrst í heildarkeppni

Að lokinni keppni í Gæðingalist verður keppnistímabilið í Meistaradeild Líflands formlega hálfnað, þar sem fjórum greinum af átta verður lokið. Þetta er því mikilvægur vendipunktur þar sem línur í heildarstigakeppninni gætu farið að skýrast verulega.

Hjarðartún með örugga forystu
Í liðakeppninni situr lið Hjarðartúns í nokkuð þægilegri stöðu á toppnum með 126,5 stig. Næstu lið þurfa að sýna klærnar annað kvöld ætli þau að minnka bilið, en baráttan um annað og þriðja sætið er hnífjöfn á milli Top Reiter/Sumarliðabæjar (86 stig) og Hrímnis/Hest.is (84 stig).

Sæti Lið Stig
1. Hjarðartún 126,5
2. Top Reiter / Sumarliðabær 86,0
3. Hrímnir / Hest.is 84,0
4. IB bílar 75,5
5. Ganghestar / Margrétarhof 71,0
6. Hestvit / Árbakki 69,0

Ásmundur Ernir í kjörstöðu
Í einstaklingskeppninni hefur Ásmundur Ernir Snorrason verið í miklu stuði það sem af er vetri. Hann hefur tryggt sér sæti í A-úrslitum í öllum greinum hingað til og leiðir deildina með 25,5 stig. Sú staðreynd að hann mætir til leiks í Gæðingalist á ríkjandi meistara, Hlökk frá Strandarhöfði, gerir stöðu hans enn sterkari. Hins vegar er Jakob Svavar (19 stig) og þau Aðalheiður Anna og Jón Ársæll (18 stig) skammt undan. Ef einhver þessara knapa nær toppsæti annað kvöld á meðan aðrir misstíga sig, gæti baráttan um einstaklingsbikarinn opnast upp á gátt fyrir seinni hluta tímabilsins.

Sæti Knapi Stig
1. Ásmundur Ernir Snorrason 25,5
2. Jakob Svavar Sigurðsson 19,0
3. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir 18,0
4. Jón Ársæll Bergmann 18,0
5. Þorgeir Ólafsson 12,0
6. Helga Una Björnsdóttir 11,5
7. Arnhildur Helgadóttir 11,0
8. Hans Þór Hilmarsson 10,0
9. Glódís Rún Sigurðardóttir 10,0
10. Eyrún Ýr Pálsdóttir 7,5
11. Árni Björn Pálsson 7,5
12. Guðmunda Ellen Sigurðardóttir 6,0
13. Teitur Árnason 5,0
14. Gústaf Ásgeir Hinriksson 3,5
15. Jóhanna Margrét Snorradóttir 2,5
16. Benjamín Sandur Ingólfsson 2,0
17. Sigurður Vignir Matthíasson 1,0
18. Bergur Jónsson 1,0

Spennandi ráslisti í gæðingalistinni

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar