Gæðingamót Fáks og Spretts hefst í dag

  • 30. maí 2025
  • Fréttir
Mótið er í beinni útsendingu á sjónvarpi Eiðfaxa

Hér má sjá dagskrá gæðingamóts Spretts og Fáks sem fer fram föstudaginn 30.maí og laugardaginn 31.maí á Samskipavellinum í Spretti.

Ráslistar liggja fyrir og þá má finna í HorseDay appinu.

Skráning í pollaflokk er ókeypis og fer fram á tölvupósti hjá motaskraning@sprettur.is fram til miðnættis föstudagsins 30.maí. Boðið verður upp á bæði pollar teymdir sem og pollar ríða sjálfir. Vinsamlegast gefið upp fullt nafn knapa, hvorn flokkinn er skráð í ásamt nafni hests, lit og aldur.

Vekjum athygli á því að:

* Gæðingatöltsflokkar hjá yngri flokkum hafa verið sameinaðir í gæðingatölt 17 ára og yngri.

* Gæðingatöltsflokkar 1 og 2 hafa verið sameinaðir í gæðingatölt fullorðinna.

* A flokkur gæðingaflokkur 2 hefur verið sameinaður við A flokk gæðingaflokk 1.

* Allar skeiðgreinar falla niður vegna dræmrar þátttöku, skráningagjöld verða endurgreidd.

Ef knapi vill ekki að skráning sín færist á milli flokka er hægt að hafa samband við motaskraning@sprettur.is

Léttar veitingar verða til sölu meðan á mótinu stendur.

Föstudagur kl.16:30

Forkeppni gæðingatölt 17 ára og yngri

Gæðingatölt fullorðnir

B-flokkur opinn

Ungmennaflokkur

Barnaflokkur

Matarhlé 25mín

  1. kl.19:30

Unglingaflokkur

B-flokkur áhugamanna

A-flokkur

Laugardagur kl.10:00

Úrslit gæðingatölt 17 ára og yngri

Úrslit gæðingatölt eldri

Ungmennaflokkur

B-flokkur opinn

Barnaflokkur

Ca. kl.12:00 Matarhlé 30mín

12:30

Pollaflokkur

B-flokkur áhugamanna

Unglingaflokkur

A-flokkur

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar