Glæsilegar töltsýningar á Brávöllum

  • 22. maí 2022
  • Fréttir

Helga Una Björnsdóttir og Flugu frá Hrafnagili unnu tölt T1 í meistaraflokki. Mynd: Nicki Pfau

Niðurstöður úr slaktaumatöltinu og töltinu á WR móti Sleipnis

WR íþróttamóti Sleipnis lauk á glæsilegum töltsýningum í kvöldsólinni á Brávöllum á Selfossi.

Helga Una Björnsdóttir vann meistaraflokkinn í tölti á Flugu frá Hrafnagili með glæsieinkunnina 8,50. Glódís Rún Sigurðardóttir vann ungmennaflokkinn á Drumbi frá Víðivöllum fremri og hlutu þau 8,00 í einkunn, glæsilegt það!

Gullið í slaktaumatölti í Meistaraflokki fór til Jakobs Svavars Sigurðsson en hann var á Kopari frá Fákshólum og hlutu þeir 8,00 í einkunn en Jakob og Kopar eru ríkjandi Íslandsmeistarar í greininni. Védís Huld Sigurðardóttir á Hrafnfaxa frá Skeggsstöðum vann slaktaumatöltið í ungmennaflokki með 7,38 í einkunn. Hermann Arason vann slaktaumatöltið í 1. flokki á Glettu frá Hólateigi með 6,79 í einkunn og unglingaflokkinn vann Glódís Líf Gunnarsdóttir á Magna frá Spágildsstöðum með 7,00 í einkunn.

Elín Árnadóttir vann töltið T3 1. flokk á Prýði frá Vík í Mýrdal en þær hlutu 7,28 í einkunn. Þórdís Sigurðardóttir vann 2. flokkinn á Gljáa frá Austurkoti en þau hlutu 6,61 í einkunn. Unglingaflokkinn vann Sigurður Steingrímsson á Hátíð frá Forsæti II með einkunnina 7,22 og barnaflokkinn vann Elísabet Líf Sigvaldadóttir á Sumarliða frá Hárlaugsstöðum 2 með 6,56 í einkunn. Í tölti T7 fór það svo að þau voru þrjú jöfn í 1 – 3. sæti en það voru þau Kristín Gyða Einarsdóttir, Kristín María Kristjánsdóttir og Loftur Breki Hauksson sem öll hlutu 5,83 í einkunn.

Niðurstöður frá öllu mótinu

 

A úrslit – Tölt T1 – Meistaraflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Helga Una Björnsdóttir Fluga frá Hrafnagili 8,50
2 Páll Bragi Hólmarsson Vísir frá Kagaðarhóli  7,89
3 Ólafur Andri Guðmundsson Dröfn frá Feti 7,78
4-5 Jakob Svavar Sigurðsson Tumi frá Jarðbrú 7,72
4-5 Steindór Guðmundsson Hallsteinn frá Hólum  7,72
6 Sigursteinn Sumarliðason Aldís frá Árheimum  7,44

A úrslit – Tölt T1 – Ungmennaflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Glódís Rún Sigurðardóttir Drumbur frá Víðivöllum fremri 8,00
2 Sigurður Baldur Ríkharðsson Trymbill frá Traðarlandi 7,44
3 Védís Huld Sigurðardóttir Stássa frá Íbishóli  7,33
4 Hákon Dan Ólafsson Styrkur frá Kvíarhóli  7,17
5 Benedikt Ólafsson Biskup frá Ólafshaga 7,06
6 Kári Kristinsson Hrólfur frá Hraunholti 6,72

A úrslit – tölt T3 – 1. flokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Elín Árnadóttir Prýði frá Vík í Mýrdal 7,28
2 Hermann Arason Gullhamar frá Dallandi 7,11
3 Sunna Sigríður Guðmundsdóttir Gæfa frá Flagbjarnarholti 6,83
4 Axel Ásbergsson Vísa frá Hjarðarholti 6,78
5-6 Sigríkur Jónsson Hrefna frá EfriÚlfsstöðum  6,28
5-6 Sigurbjörg Bára Björnsdóttir Dásemd frá Vorsabæ II  6,28

A úrslit – Tölt T3 – 2.flokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Þórdís Sigurðardóttir Gljái frá Austurkoti 6,61
2 Berglind Ágústsdóttir Framsýn frá EfraLangholti  6,33
3 Berglind Sveinsdóttir Tvistur frá Efra-Seli  6,22
4 Marie Louise Fogh Schougaard Hugrún frá Blesastöðum 1A  5,61
5 Bryndís Guðmundsdóttir Villimey frá Hveragerði  5,56
6 Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir Náttdís frá Rauðabergi 5,17

A úrslit – Tölt T3 – Unglingaflokkur
Sæti Knapi Hross  Einkunn
1 Sigurður Steingrímsson Hátíð frá Forsæti II 7,22
2 Hekla Rán Hannesdóttir Agla frá Fákshólum  7,06
3 Guðný Dís Jónsdóttir Straumur frá Hofsstöðum, Garðabæ 7,00
4 Herdís Björg Jóhannsdóttir Snillingur frá Sólheimum 6,94
5 Svandís Aitken Sævarsdóttir Huld frá Arabæ 6,83
6 Ragnar Snær Viðarsson Eik frá Sælukoti 6,39

A úrslit – Tölt T3 – Barnaflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Elísabet Líf Sigvaldadóttir Sumarliði frá Hárlaugsstöðum 2 6,56
2 Kristín Eir Hauksdóttir Holake Þytur frá Skáney  6,44
3 Fríða Hildur Steinarsdóttir Litla-Jörp frá Koltursey  6,17
4 Róbert Darri Edwardsson Viðar frá Eikarbrekku 5,33

A úrslit – Tölt T7 – Barnaflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1-3 Kristín Gyða Einarsdóttir Kliður frá Efstu-Grund  5,83
1-3 Kristín María Kristjánsdóttir Leiftur frá Einiholti 2 5,83
1-3 Loftur Breki Hauksson Höttur frá Austurási 5,83
4 Unnur Rós Ármannsdóttir Toppálfur frá Hvammi  5,58
5 Haukur Orri Bergmann Heiðarsson Flugsvin frá Grundarfirði 5,33
6 Súsanna Sóley Steinarsdóttir Flygill frá Bjarnarnesi 5,00

Slaktaumatölt

A úrslit – Slaktaumatölt T2 – Meistaraflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Jakob Svavar Sigurðsson Kopar frá Fákshólum 8,00
2-3 Ólöf Helga Hilmarsdóttir Katla frá Mörk  7,62
2-3 Helga Una Björnsdóttir Hnokki frá Eylandi 7,62
4 Sigurður Vignir Matthíasson Dímon frá Laugarbökkum 7,58
5 Reynir Örn Pálmason Týr frá Jarðbrú 7,33
6 Ólafur Andri Guðmundsson Askja frá Garðabæ 7,29
7 Vilfríður Sæþórsdóttir List frá Múla 7,08

A úrslit – Slaktaumatölt T2 – Ungmennaflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Védís Huld Sigurðardóttir Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum 7,38
2 Benedikt Ólafsson Bikar frá Ólafshaga 7,04
3 Glódís Rún Sigurðardóttir Breki frá Austurási 7,00
4 Kristján Árni Birgisson Glámur frá Hafnarfirði  6,71
5 Þórey Þula Helgadóttir Sólon frá Völlum 5,92
6 Anna María Bjarnadóttir Birkir frá Fjalli  1,79

A úrslit – Slaktaumatölt T4 – 1. flokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Hermann Arason Gletta frá Hólateigi 6,79
2-3 Joëlle Jeannette Brönnimann Skorri frá Skriðulandi 6,71
2-3 Auður Stefánsdóttir Gustur frá Miðhúsum 6,71
4 Soffía Sveinsdóttir Hrollur frá Hrafnsholti 5,71
5 Johanna Kunz Feykir frá SyðriGegnishólum  5,67

A úrslit – Slaktaumatölt T4 – Unglingaflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Glódís Líf Gunnarsdóttir Magni frá Spágilsstöðum  7,00
2 Sara Dís Snorradóttir Eldey frá Hafnarfirði 6,79
3 Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir Þytur frá Stykkishólmi  6,42
4 Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson Polka frá Tvennu  6,04
5 Sigurður Steingrímsson Ástríkur frá Hvammi  6,00
6 Svandís Aitken Sævarsdóttir Sævar frá Arabæ 3,17

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar