Glæsilegur sigur hjá Aðalheiði og Flóvent
Margar verulega flottar sýningar í kvöld og gríðar sterk keppni í gæðingalist í HorseDay höllinni í kvöld. Engin úrslit voru riðin svo allir knapar fengu eitt tækifæri til að sýna sitt besta. Það tókst heldur betur hjá Aðalheiði Önnu Guðjónsdóttur og Flóvent frá Breiðsstöðum sem tryggðu sér sigur með 8,50 í einkunn. Þetta er í annað sinn sem Aðalheiðru og Flóvent vinna greinina en þau unnu hana árið 2024 og voru í öðru sæti í fyrra.
Jakob Svavar Sigurðsson varð annar á Hrefnu frá Fákshólum með 8,37 í einkunn og þriðji varð Ásmundur Ernir Snorrason á Hlökk frá Strandarhöfði með 8,30 í einkunn.
TopReiter/Sumarliðabær stigahæst í kvöld
Stigahæsta lið kvöldsins var lið Top Reiter/Sumarliðabæjar með 50 stig og náði að saxa örlítið á forskot Hjarðartúns sem trónir þó enn á toppnum með 162 stig í heildina. TopReiter/Sumarliðabær er í öðru sæti með 126 stig og í því þriðja með 109 stig er lið Hrímnis/Hest.is.
Spenna í einstaklingskeppninni
Aðalheiður Anna nældi sér í 12 stig í kvöld og náði öðru sæti af Jakobi sem er nú í þriðja með 29 stig en Aðalheiður með 30 stig. Ásmundur Ernir situr enn á toppnum í einstaklingskeppninni með 33,5 stig. Mjótt er á munum og greinilegt að mikil spenna verður í einstaklingskeppninni í ár.
Nú er deildin hálfnuð, keppni í fjórum greinum er lokið og fjórar greinar eftir. Næst er skeiðmót deildarinnar sem fer fram á Selfossi þann 21. mars og byrjar kl. 13:00.
Heildarniðurstöður úr gæðingalistinni
Nr. Knapi Lið Lokaeinkunn
1. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum Ganghestar/Margrétarhof 8.50
2. Jakob Svavar Sigurðsson Hrefna frá Fákshólum Hjarðartún 8.37
3. Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði Hrímnir/Hest.is 8.30
4. Eyrún Ýr Pálsdóttir Náttrún frá Þjóðólfshaga 1 Top Reiter/Sumarliðabær 8.00
5.-6. Þorgeir Ólafsson Aspar frá Hjarðartúni IB bílar 7.97
5.-6. Árni Björn Pálsson Kriki frá Krika Top Reiter/Sumarliðabær 7.97
7.-8. Teitur Árnason Auðlind frá Þjórsárbakka Top Reiter/Sumarliðabær 7.83
7.-8.Arnhildur Helgadóttir Frosti frá Hjarðartúni Hjarðartún 7.83
9. Jón Ársæll Bergmann Díana frá Bakkakoti IB bílar 7.67
10. Glódís Rún Sigurðardóttir Vikar frá Austurási Hestvit/Árbakki 7.47
11. Jóhanna Margrét Snorradóttir Bútur frá Litla-Dal Hestvit/Árbakki 7.40
12. Helga Una Björnsdóttir Björt frá Kráku Hjarðartún 7.37
13. Ragnhildur Haraldsdóttir Særún frá Steinnesi Ganghestar/Margrétarhof 7.33
14. Brynja Kristinsdóttir Sunna frá Haukagili Hvítársíðu Hrímnir/Hest.is 7.27
15. Sigurður Sigurðarson Þróttur frá Hvammi Hrímnir/Hest.is 6.97
16. Bergur Jónsson Glampi frá Ketilsstöðum IB bílar 6.90
17. Pierre Sandsten-Hoyos Kinnungur frá Torfunesi Hestvit/Árbakki 6.80
18. Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Líndal Grettir frá Hólum Ganghestar/Margrétarhof 6.63
Glæsilegur sigur hjá Aðalheiði og Flóvent
Erla og Þorvaldur sigurvegarar fjórgangsins
FEIF Youth Cup 2026