1. deildin í hestaíþróttum Glæsilegur sigur hjá Þórdísi

  • 13. febrúar 2026
  • Fréttir

Þórdís Inga Pálsdóttir og Móses frá Flugumýri II unnu fjórganginn Myndir: Gunnhildur Ýrr

Niðurstöður úr fjórgangi í 1. deild Hringdu í hestaíþróttum.

Fyrsta mót 1. deildarinnar fór fram í kvöld í nýrri höll Sörla. Þórdís Inga Pálsdóttir vann með nokkrum mun fjórganginn á Móses frá Flugumýri II en þau hlutu 7.63 í einkunn. Þórdís Inga og Móses náðu efsta sætinu eftir fetið og héldu forustunni allt til leiks loka.

Ólöf Rún Guðmundsdóttir varð önnur á Flaumi frá Fákshólum með 7.27 í einkunn og í því þriðja varð Katla Sif Snorradóttir á Sæmari frá Stafholti.

Lið Hrímnis, f.v. Þórdís Inga Pálsdóttir, Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir, Benedikt Ólafsson, Sigurður Baldur Ríkharðsson og Hafþór Hreiðar Birgisson.

Það var lið Hrímnis sem vann liðaplatta kvöldsins en þau Þórdís Inga, Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir og Sigurður Baldur Ríkharsson kepptu fyrir liðið í kvöld. Bjarney endaði í 5 – 6 sæti og Sigurður Baldur varð í 8 – 10 sæti.

Niðurstöður úr fjórgangnum

A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Þórdís Inga Pálsdóttir Móses frá Flugumýri II 7,63
2 Ólöf Rún Guðmundsdóttir Flaumur frá Fákshólum 7,27
3 Katla Sif Snorradóttir Sæmar frá Stafholti 7,10
4 Ólafur Þórisson Fáfnir frá Miðkoti 6,77
5-6 Bjarney Jóna Unnsteinsd. Hrafn frá Ytri-Skógum 6,10
5-6 Lea Schell Húni frá Efra-Hvoli 6,10

Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Þórdís Inga Pálsdóttir Móses frá Flugumýri II 7,30
2 Bjarney Jóna Unnsteinsd. Hrafn frá Ytri-Skógum 7,17
3 Katla Sif Snorradóttir Sæmar frá Stafholti 6,97
4 Ólöf Rún Guðmundsdóttir Flaumur frá Fákshólum 6,93
5 Lea Schell Húni frá Efra-Hvoli 6,83
6 Ólafur Þórisson Fáfnir frá Miðkoti 6,83
7 Hlynur Guðmundsson Neisti frá Ytri-Skógum 6,83
8-10 Sigurður Baldur Ríkharðsson Garri frá Bessastöðum 6,77
8-10 Fredrica Fagerlund Sjarmur frá Fagralundi 6,77
8-10 Helgi Þór Guðjónsson Salka frá Kviku 6,77
11-12 Birna Olivia Ödqvist Hrafn frá Oddsstöðum I 6,73
11-12 Vilborg Smáradóttir Sigur frá Stóra-Vatnsskarði 6,73
13-14 Reynir Örn Pálmason Goði frá Garðabæ 6,60
13-14 Anna S. Valdemarsdóttir Litríkur frá Miðengi 6,60
15 Þorvaldur Logi Einarsson Vígur frá Einiholti 6,50
16 Eysteinn Tjörvi K. Kristinsson Fortíð frá Ketilsstöðum 6,37
17-18 Hermann Arason Runni frá Vindási 6,30
17-18 Haukur Tryggvason Hnáta frá Auðsholtshjáleigu 6,30
19 Thelma Dögg Tómasdóttir Efi frá Kerhóli 6,27
20 Anna Björk Ólafsdóttir Atlas frá Ragnheiðarstöðum 6,13
21 Friðdóra Friðriksdóttir Hallsteinn frá Hólum 6,10
22 Snorri Dal Sæljómi frá Stafholti 6,07
23 Sunna Sigríður Guðmundsdóttir Jökull frá Þingbrekku 6,03
24 Hannes Sigurjónsson Dimmir frá Varmalæk 5,90

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar