Samskipadeildin - Áhugamannadeild Spretts Glódís og lið Fossvéla sigurvegarar í slaktaumatölti

  • 6. mars 2026
  • Fréttir

Glódís Helgadóttir og Ötull frá Narfastöðum. Ljósmynd: Draumfaramyndataka/Gunnhildur Ýrr

Niðurstöður frá keppni í slaktaumatölti í Samskipadeildinni

Keppni í slaktaumatölti fór fram í gærkvöldi í Samskipadeildinni – Áhugamannadeild Spretts. Er þetta annað mótið í deildinni en áður hafði verið keppt í fjórgangi. Næsta mót fer fram þann 20. mars næstkomandi þegar keppt verður í fimmgangi.

Að lokinni forkeppni var það Glódís Helgadóttir á Ötulli frá Narfastöðum sem leiddi með einkunnina 7,10, hún hélt þeirri forystu í A-úrslitum og stóð uppi sem sigurvegari með 7,29 í einkunn. Annar varð Gunnar Már Þórðarson á Júpíter frá Votumýri 2 en þeir hlutu 7,12 í einkunn í úrslitum og í þriðja sætinu varð Hrönn Ásmundsdóttir á Rafni frá Melabergi með 6,83 í einkunn.

Stigahæsta lið kvöldsins var lið Fossvéla en þau sigruðu einnig í heildarstigakeppni í fjórgangi. Liðsmenn þessu eru Erla Guðný Gylfadóttir, Gunnar Már Þórðarson, Theódóra Þorvaldsdóttir, Þórdís Sigurðardóttir og Þórunn Kristjánsdóttir. Þjálfari er Viðar Ingólfsson og voru það þau Erla Guðný, Gunnar Már og Þórdís sem kepptu fyrir hönd liðsins í slaktaumatölti.

Sigurlið Fossvéla. Ljósmynd: Draumfaramyndataka/Gunnhildur Ýrr

Úrslit í slaktaumatölti

Tölt T4
Fullorðinsflokkur – 2. flokkur
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Glódís Helgadóttir Ötull frá Narfastöðum 7,10
2 Hrönn Ásmundsdóttir Rafn frá Melabergi 6,83
3 Sarah Maagaard Nielsen Sólbirta frá Miðkoti 6,77
4 Anna Kristín Kristinsdóttir Styrkur frá Stokkhólma 6,70
5 Gunnar Már Þórðarson Júpíter frá Votumýri 2 6,47
6 Erla Guðný Gylfadóttir Roði frá Margrétarhofi 6,47
7 Guðlaug Jóna Matthíasdóttir Ágúst frá Hrauni 6,47
8 Þorgerður Gyða Ásmundsdóttir Hnokki frá Áslandi 6,47
9-10 Rúnar Bragason Andi frá Skálakoti 6,40
9-10 Rósa Valdimarsdóttir Kopar frá Álfhólum 6,40
11 Valdimar Ómarsson Afródíta frá Álfhólum 6,30
12 Kristín Ingólfsdóttir Ásvar frá Hamrahóli 6,27
13 Gunnar Eyjólfsson Rökkvi frá Litlalandi Ásahreppi 6,20
14 Arnhildur Halldórsdóttir Heiðrós frá Tvennu 6,17
15 Elín Íris Jónasdóttir Rökkvi frá Lækjardal 6,07
16 Guðmundur Ásgeir Björnsson Skjöldur frá Stóru-Mástungu 2 6,03
17-18 Þórdís Sigurðardóttir Gljái frá Austurkoti 6,00
17-18 Ámundi Sigurðsson Maísól frá Miklagarði 6,00
19 Aníta Eik Kjartansdóttir Hrafn frá Þúfu í Kjós 5,97
20-21 Auður Stefánsdóttir Sara frá Vindási 5,87
20-21 Árni Geir Norðdahl Eyþórsson Svikari frá Litla-Laxholti 5,87
22 Inga Kristín Campos Sigurrós frá Akranesi 5,83
23 Elín Hrönn Sigurðardóttir Snilld frá Skeiðvöllum 5,67
24 Patricia Ladina Hobi Glæsir frá Akranesi 5,47
25 Þóra Guðrún Skúladóttir Beitir frá Gunnarsstöðum 5,43
26 Kolbrún Kristín Birgisdóttir Stirnir frá Blesastöðum 2A 5,37
27-28 Klara Sif Ásmundsdóttir Eldur frá Hvolsvelli 5,30
27-28 Kristinn Karl Garðarsson Veigar frá Grafarkoti 5,30
29-30 Sigurður V. Ragnarsson Alda frá Skipaskaga 5,17
29-30 Sigurbjörn Eiríksson Ás frá Hofsstöðum, Garðabæ 5,17
31 Gunnar Tryggvason Fönix frá Brimilsvöllum 5,10
32 Erna Jökulsdóttir Sól frá Kirkjubæ 5,07
33 Aníta Rós Róbertsdóttir Þeyr frá Þjórsárbakka 5,03
34-35 Sverrir Sigurðsson Þór frá Höfðabakka 4,90
34-35 Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir Ófeigur frá Selfossi 4,90
36 Anna Vilbergsdóttir Jörp frá Mið-Fossum 4,73
37 Ragnheiður Jónsdóttir Sóley frá Ósabakka 4,63
38 Kristín Birna Óskarsdóttir Hringadrottning frá Kolsholti 3 4,43
39 Darri Gunnarsson Týr frá Miklagarði 4,17
40 Eyþór Jón Gíslason Nökkvi frá Hvítárvöllum 3,53
41 Guðrún Randalín Lárusdóttir Gleði frá Neðra-Ási II 3,43
42 Svanbjörg  Vilbergsdótti Svarthöfði frá Efri-Skálateigi 1 3,40
B úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
7-8 Þorgerður Gyða Ásmundsdóttir Hnokki frá Áslandi 6,54
7-8 Rúnar Bragason Andi frá Skálakoti 6,54
9 Guðlaug Jóna Matthíasdóttir Ágúst frá Hrauni 6,46
10 Kristín Ingólfsdóttir Ásvar frá Hamrahóli 6,38
11 Valdimar Ómarsson Afródíta frá Álfhólum 6,33
12 Rósa Valdimarsdóttir Kopar frá Álfhólum 5,58
13 Erla Guðný Gylfadóttir Roði frá Margrétarhofi 0,00
A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Glódís Helgadóttir Ötull frá Narfastöðum 7,29
2 Gunnar Már Þórðarson Júpíter frá Votumýri 2 7,12
3 Hrönn Ásmundsdóttir Rafn frá Melabergi 6,83
4 Anna Kristín Kristinsdóttir Styrkur frá Stokkhólma 6,71
5 Sarah Maagaard Nielsen Sólbirta frá Miðkoti 6,58
6 Erla Guðný Gylfadóttir Roði frá Margrétarhofi 6,42

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar