„Góð tíðindi fyrir hestafólk“
Atli Már Ingólfsson formaður Sörla og Magnús Benediktsson fyrir hönd Eiðfaxa við undirritun samnings um Íslandsmót
Íslandsmót fullorðinna og ungmenna í hestaíþróttum fer fram á félagssvæði Hestamannafélagsins Sörla í Hafnarfirði dagana 17.-21. júní í sumar. Nýverið var undirritaður samningur milli Sörla og EiðfaxaTV um beina útsendingu frá mótinu.
Blaðamaður Eiðfaxa settist niður með Atla Má Ingólfssyni, formanni Sörla, af þessu tilefni og ræddi við hann um undirbúninginn, nýja aðstöðu og væntingar félagsins til sumarsins.
Umgjörðin skiptir máli
Aðspurður hvað samningurinn við EiðfaxaTV þýði fyrir hestamannafélagið Sörla er Atli bjartsýnn.„Ég held að þetta þýði að þeir sem ætla sér að fylgjast með hestamennskunni í vor og sumar eigi von á góðu,“ segir Atli og leggur áherslu á að nútíma móthald krefjist sýnileika.
„Það er mikilvægt að það sé vel staðið að umgjörð í kringum Íslandsmót og hluti af því er að mótið sé tekið upp. Þeir sem komast ekki á staðinn geta þá horft í beinu streymi eða horft síðar. Ég held því að þetta séu góð tíðindi fyrir hestafólk og okkur hér í Sörla.“
Einstök aðstaða
Aðstaðan hjá Sörla hefur tekið stakkaskiptum með tilkomu nýrrar og glæsilegrar reiðhallar. Atli segir að markmiðið sé að nýta þessa nýju aðstöðu til að brydda upp á nýjungum í kringum mótið.
„Nýjungarnar felast kannski í því hvernig við nýtum svæðið. Það er staðreynd að það er ekkert svæði á landinu sem getur státað af því að geta nýtt inniaðstöðuna jafnvel til stuðnings við keppnishaldið úti, líkt og hér í Hafnarfirði,“ segir Atli. Hann tekur þó fram að svæðið henti betur fyrir Íslandsmót en Landsmót.
„Þetta er ekki svæði sem mun taka að sér Landsmót, þar sem landrýmið hér í kring er ekki nægt í það, en þetta er frábært svæði fyrir Íslandsmót. Við í Sörla hlökkum mikið til að fá að spreyta okkur á Íslandsmóti í vor.“
Framkvæmdir hafa staðið yfir á keppnisvöllunum til að tryggja öryggi og gæði. „Við erum búin að taka skeiðbrautarendann og laga hann þannig að hann sé öruggur, en töluvert fjármagn hefur farið í þá lagfæringu. Skeiðbrautin og kynbótabrautin er góð og þekkt fyrir það t.d. gefa góða tíma í skeiði.“
Hvað varðar vellina sjálfa segir Atli að reynslan skipti máli við viðhald. „Við höfum ekki endurnýjað vellina en reynslan er sú að ef þeim er vel sinnt vikurnar fyrir mót, og meðan á mótinu stendur, þá eru þeir mjög góðir. Þetta er það sem keppnisfólkið segir; þeir eru ekki þeir hörðustu á landinu en þykja mjög góðir og hestvænir.“
Að lokum var komið inn á praktísk atriði varðandi hesthúspláss fyrir aðkomuhesta. Atli hefur engar áhyggjur af þeim málum.
„Já, það verður örugglega hægt að fá nóg af plássum í Hafnarfirði. Nálægðin við önnur svæði er einnig það mikil að ég efast ekki um að þar verði líka hægt að koma hrossum fyrir ef á þarf að halda,“ sagði Atli Már Ingólsson að lokum.
Við hjá Eiðfaxa erum ákaflega stolt af því að sýna frá Íslandsmóti og bæta þar með ennþá meira í þá viðamiklu dagskrá sem áskrifendur okkar hafa aðgang að.
„Góð tíðindi fyrir hestafólk“
Til minningar um Ragnheiði Hrund
Nýr landsliðshópur kynntur