Góður dagur hjá Árna Birni og Konráði Val
Árni Björn Pálsson og Elma frá Staðarhofi sigurvegarar í gæðingaskeiði. Myndir: Marta Gunnars
Það er ekki hægt að segja að það hafi viðrað vel til skeiðkappreiða á Brávöllum á Selfossi í dag en þar fór fram skeiðmót Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum. Veðrið slapp ágætlega þangað til að byrja að snjóa í seinni skeiðsprettinum í gæðingaskeiðinu og var veðrið orðið hrikalegt í lok kappreiðanna.
TopReiter/Sumarliðabær höluðu inn stigum
Árni Björn Pálsson safnaði sér stigum í dag með sigur í gæðingaskeiði á Elmu frá Staðarhofi og silfri í 150 m. skeiði á Ögra frá Horni I. Það þýða 22 stig í pottinn fyrir hann og þriðja sætið í einstaklingskeppninni með 35 stig.
Liðsfélagi hans, Konráð Valur Sveinsson, lék svipaðann leik, vann 150 m. skeiðið og tók silfrið í gæðingaskeiðinu á Kastori frá Garðshorni á Þelamörk. Ótrúlegur tími hjá Konráð og Kastor en þeir fóru báða sprettina undir 14,00 sek. í 150 m. skeiðinu.

Konráð Valur Sveinsson og Kastor frá Garðshorni á Þelamörk sigurvegarar í 150 metra skeiði
Þeir keppa báðir fyrir lið TopReiter/Sumarliðabæjar sem vann báða liðaplatana í dag og náði efsta sætinu af liði Hjarðartúns en nú munar hálfu stigi á liðunum.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá niðurstöður frá mótinu.

Liðsmenn TopReiter/Sumarliðabæjar kampakátir með frábæran árangur dagsins. F.v. Árni Björn Pálsson, Teitur Árnason, Guðmunda Ellen Sigurðardóttir og Konráð Valur Sveinsson.
Spenna í stigakeppninni
Dagurinn í dag setti heldur betur spennu í bæði liða- og einstaklingskeppnina. Það eru nokkur stig sem skilja að efstu knapa í einstaklingskeppninni en Ásmundur Ernir Snorrason er enn efstur á toppnum með 38,5 stig en hann náði í stig dag í gæðingaskeiðinu. Aðalheiður Anna er í öðru sætinu með 37 stig en hún náði stigum í báðum greinum. Eins og áður sagði er Árni Björn í þriðja sætinu með 35 stig eftir góðan dag á skeiðbrautinni og Jakob Svavar Sigurðsson er í því fjórða með 29 stig.
TopReiter/Sumarliðabær átti mjög góðan dag og náði efsta sætinu af liði Hjarðartúns sem átti ekki eins góðan dag. TopReiter/Sumarliðabær náði efsta sætinu og munar nú hálfu stigi á því og Hjarðartúni. IB Bílar rifu sig líka upp í þriðja sætið
Næsta mót er lokamót deildarinnar en þá verður keppt í tölti og skeiði í gegnum höllina. Mótið fer fram föstudaginn 27. mars í HorseDay höllinni.
Staðan í einstaklingskeppninni
- Ásmundur Ernir Snorrason 38.5
- Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir 37
- Árni Björn Pálsson 35
- Jakob Svavar Sigurðsson 29
- Jón Ársæll Bergmann 26
- Þorgeir Ólafsson 25.5
- Konráð Valur Sveinsson 22
- Helga Una Björnsdóttir 18.5
- Hans Þór Hilmarsson 15.5
- Arnhildur Helgadóttir 14.5
Eyrún Ýr Pálsdóttir 14.5
Staðan í liðakeppninni
- TopReiter/Sumarliðabær 218
- Hjarðartún 217.5
- IB bílar 154
- Ganghestar/Margrétarhof 150
- Hestvit/Árbakki 144
- Hrímnir/Hest.is 141.5
Skeið 150m. niðurstöður
Sæti Knapi Hross Lið Tími
1 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk TopReiter/Sumarliðabær 13,94
2 Árni Björn Pálsson Ögri frá Horni I TopReiter/Sumarliðabær 14,47
3 Þorgeir Ólafsson Grunur frá Lækjarbrekku 2 IB bílar 14,74
4 Helga Una Björnsdóttir Salka frá Fákshólum Hjarðartún 14,88
5 Hinrik Bragason Klókur frá Dallandi Hestvit/Árbakki 15,02
6 Hans Þór Hilmarsson Bína frá Vatnsholti Hjarðartún 15,10
7 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Hörpurós frá Helgatúni Ganghestar/Margrétarhof 15,30
8 Teitur Árnason Hátíð frá Sumarliðabæ 2 TopReiter/Sumarliðabær 15,34
9-10 Flosi Ólafsson Orka frá Breiðabólsstað Hrímnir/Hest.is 15,49
9-10 Benjamín Sandur Ingólfsson Gullborg frá Læk IB bílar 15,49
11 Daníel Gunnarsson Sigur frá Bessastöðum Uppboðssæti 15,83
12 Sigurður Vignir Matthíasson Gnúpur frá Dallandi Ganghestar/Margrétarhof 15,98
13 Jóhanna Margrét Snorradóttir Sæla frá Hemlu II Hestvit/Árbakki 16,00
14 Gústaf Ásgeir Hinriksson Piltur frá Sturlureykjum 2 Hestvit/Árbakki 16,07
15 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Alviðra frá Kagaðarhóli Ganghestar/Margrétarhof 16,08
16 Jakob Svavar Sigurðsson Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði Hjarðartún 16,35
17 Jón Ársæll Bergmann Otra frá Fornhaga II IB bílar 16,38
18 Ásmundur Ernir Snorrason Númi frá Árbæjarhjáleigu II Hrímnir/Hest.is 16,69
19 Sigurður Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk Hrímnir/Hest.is 0,00
Gæðingaskeið PP1 niðurstöður
Sæti Knapi Hross Lið Einkunn
1 Árni Björn Pálsson Elma frá Staðarhofi TopReiter/Sumarliðabær 8,58
2 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk TopReiter/Sumarliðabær 8,54
3 Gústaf Ásgeir Hinriksson Piltur frá Sturlureykjum 2 Hestvit/Árbakki 7,58
4 Sigurður Vignir Matthíasson Hvirfill frá Mánaskál Ganghestar/Margrétarhof 7,46
5 Jón Ársæll Bergmann Gljásteinn frá Íbishóli IB bílar 7,21
6 Ásmundur Ernir Snorrason Askur frá Holtsmúla 1 Hrímnir/Hest.is 7,17
7 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Hörpurós frá Helgatúni Ganghestar/Margrétarhof 7,13
8 Elvar Þormarsson Ýr frá Selfossi Hjarðartún 7,13
9 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Mjallhvít frá Sumarliðabæ 2 TopReiter/Sumarliðabær 7,13
10 Bergur Jónsson Salvar frá Hellubæ IB bílar 7,08
11 Hans Þór Hilmarsson Penni frá Eystra-Fróðholti Hjarðartún 7,08
12 Jóhanna Margrét Snorradóttir Sæla frá Hemlu II Hestvit/Árbakki 6,92
13 Hinrik Bragason Eik frá Efri-Rauðalæk Hestvit/Árbakki 6,63
14 Viðar Ingólfsson Lína frá Þjóðólfshaga 1 Hrímnir/Hest.is 6,50
15 Jakob Svavar Sigurðsson Bresi frá Efri-Hrepp Hjarðartún 6,42
16 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Gammur frá Efri-Þverá Ganghestar/Margrétarhof 4,71
17 Jóhann Kristinn Ragnarsson Þórvör frá Lækjarbotnum Uppboðssæti 3,88
18 Sigurður Sigurðarson Glettir frá Þorkelshóli 2 Hrímnir/Hest.is 3,79
19 Þorgeir Ólafsson Grunur frá Lækjarbrekku 2 IB bílar 1,00
Keppnishross í Meistaradeild Líflands