Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Hanne gerði góða ferð norður

  • 27. febrúar 2026
  • Fréttir

Hanne Smidesang og Tónn í keppni kvöldsins. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir

Lið Þúfna stigahæsta lið kvöldsins

Keppni í slaktaumatölti í Meistaradeild KS fór fram í Svaðastaðahöllinni í kvöld. Var þetta önnur keppnisgreinin í ár sem keppt er í og næsta grein er fimmgangur , sem fram fer 13.mars. Kvöldið í kvöld var tileinkað Einstökum börnum á alþjóðlegum degi sjaldgæfra sjúkdóma sem er í dag, 27. febrúar.

Þeir Trausti Ingólfsson fyrir hönd Diesel afl, sem bauð frítt inn í kvöld, og Þórður Bragi Sigurðsson. Sáu um að veita verðlaun kvöldsins. Með þeim er gæðingurinn Tónn frá Hjarðartúni. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir

Slaktaumatölt er krefjandi grein og er oft stutt á milli þess að knöpum takist vel til og að miður fari. Þeir knapar sem riðu til úrslita áttu góðar sýningar í forkeppni og varð til þess að keppni í A-úrslitum var sterk og spennandi.

Hanne Oustad Smidesang keppti sem villiköttur fyrir lið Hofstorfunnar/550 á Tóni frá Hjarðartúni. Hún sigraði keppinauta sína með nokkrum yfirburðum hlaut 7,90 í forkeppni og 8,38 í úrslitum. Góð ferð norður hjá Hanne og Tóni sem eru á meðal sterkustu para landsins í þessari grein. Önnur varð Vera Scneiderchen á Feyki frá Selfossi með 7,58 í úrslitum og stuttu á eftir henni í þriðja sætinu varð Mette Mannseth á Töfra frá Þúfum með 7,46.

Lið Þúfna varð stigahæsta lið kvöldsins með 72 stig, þar á eftir kom lið Líflands með 59 stig og í því þriðja Hrímnir/Hestklettur með 54 stig.

Keppendur í liði Þúfna í kvöld voru þær Mette Mannseth, Barbara Wenzl og Lea Busch. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir

Heildarúrslit

Tölt T2
Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Hanne Oustad Smidesang Tónn frá Hjarðartúni 7,90
2-3 Mette Mannseth Töfri frá Þúfum 6,93
2-3 Barbara Wenzl Maístjarna frá Naustum III 6,93
4 Lilja Dögg Ágústsdóttir Hryggur frá Hryggstekk 6,90
5 Vera Evi Schneiderchen Feykir frá Selfossi 6,83
6-8 Lea Christine Busch Kvaran frá Ölduhofi 6,77
6-8 Þorsteinn Björn Einarsson Hagur frá Hofi á Höfðaströnd 6,77
6-8 Auður Karen Auðbjörnsdóttir Hátíð frá Garðsá 6,77
9 Agnar Þór Magnússon Jósteinn frá Íbishóli 6,73
10 Finnbogi Bjarnason Einir frá Enni 6,70
11 Kristján Árni Birgisson Stúdent frá Ásmúla 6,43
12 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Sindri frá Lækjamóti II 6,33
13-15 Björg Ingólfsdóttir Valíant frá Miðhjáleigu 6,20
13-15 Matthías Sigurðsson Víkingur frá Hlemmiskeiði 2 6,20
13-15 Magnús Bragi Magnússon Óskhyggja frá Íbishóli 6,20
16 Elvar Einarsson Muni frá Syðra-Skörðugili 6,17
17 Sigurður Dagur Eyjólfsson Andrá frá Mykjunesi 2 6,03
18 Herjólfur Hrafn Stefánsson Yllir frá Reykjavöllum 5,90
19-20 Sigurður Heiðar Birgisson Fagri frá Skeiðvöllum 5,87
19-20 Herdís Björg Jóhannsdóttir Stofn frá Akranesi 5,87
21 Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir Þytur frá Stykkishólmi 5,70
22 Þorsteinn Björnsson Gefjun frá Hólum 5,57
23 Ólöf Bára Birgisdóttir Blær frá Tjaldhólum 5,53
24 Sigurður Steingrímsson Sindri frá Kálfsstöðum 5,23
25 Atli Freyr Maríönnuson Sif frá Staðarhofi 5,03
26 Björgvin Helgason Eyjasól frá Litlu-Brekku 4,20
27 Julian Veith Tindur frá Núpstúni 4,13
B úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Finnbogi Bjarnason Einir frá Enni 7,21
7 Þorsteinn Björn Einarsson Hagur frá Hofi á Höfðaströnd 6,92
8 Agnar Þór Magnússon Jósteinn frá Íbishóli 6,79
9-10 Lea Christine Busch Kvaran frá Ölduhofi 6,75
9-10 Auður Karen Auðbjörnsdóttir Hátíð frá Garðsá 6,75
A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Hanne Oustad Smidesang Tónn frá Hjarðartúni 8,38
2 Vera Evi Schneiderchen Feykir frá Selfossi 7,58
3 Mette Mannseth Töfri frá Þúfum 7,46
4 Lilja Dögg Ágústsdóttir Hryggur frá Hryggstekk 6,96
5 Barbara Wenzl Maístjarna frá Naustum III 6,75

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar