Heimsmet í 250 m. skeiði

Konráð Valur Sveinsson og Kastor frá Garðshorni á Þelamörk settu heimsmet í morgun á Selfossi Mynd: Gunnhildur Ýrr
Seinni umferðin í kappreiðunum á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna hófst kl. 10:00 í morgun á keppni í 250 m. skeiði.
Heimsmet
Það voru frábærar aðstæður, þurrt, frekar heitt og næstum logn. Þeir félagar Konráð Valur Sveinsson og Kastor frá Garðshorni á Þelamörk nýttu sér færið og settu nýtt heimsmet í 250 m. skeiði eða 21,06 sek. Enn á þó eftir að staðfesta metið af FEIF en ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu. Heimsmetið átti Daníel Ingi Smárason og Huldu fráan Margretehof en það var 21,07 sek.
Í öðru sæti í meistaraflokki varð Gústaf Ásgeir Hinriksson og Sjóður frá Þóreyjarnúpi með besta tímann sinn í ár eða 21,72 sek. og í því þriðja Daníel Gunnarsson og Kló frá Einhamri einnig með besta tímann sinn í ár, 21,97 sek.
Spennan mikil í ungmennaflokki
Íslandsmeistari í ungmennaflokki er Sara Dís Snorradóttir og Djarfur frá Litla-Hofi en þau voru með tímann 22,28 sek. Sama tíma en lakari annan besta tíma var Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal og Alviðra frá Kagaðarhóli með 22,28 sek. Með þriðja besta tímann var Kristján Árni Birgisson og Krafla frá Syðri-Rauðalæk eða 22,52 sek.
Hér fyrir neðan eru myndband af heimsmets spretti Konráðs og Kastors og heildarniðurstöður úr 250 m. skeiðinu.
Skeið 250m P1
Meistaraflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk 21,06
2 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sjóður frá Þóreyjarnúpi 21,72
3 Daníel Gunnarsson Kló frá Einhamri 2 21,97
4 Sigursteinn Sumarliðason Liðsauki frá Áskoti 22,08
5 Sigurður Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk 22,22
6 Sigursteinn Sumarliðason Krókus frá Dalbæ 22,38
7 Árni Björn Pálsson Ögri frá Horni I 22,59
8 Hanne Oustad Smidesang Vinátta frá Árgerði 23,49
9 Þorgeir Ólafsson Rangá frá Torfunesi 23,50
10 Ásmundur Ernir Snorrason Númi frá Árbæjarhjáleigu II 24,33
11 Hjörleifur Helgi Sveinbjarnarson Gjafar frá Hrafnsstöðum 24,75
12-13 Larissa Silja Werner Hylur frá Kjarri 0,00
12-13 Þorgils Kári Sigurðsson Flugdís frá Kolsholti 3 0,00
Ungmennaflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Sara Dís Snorradóttir Djarfur frá Litla-Hofi 22,28
2 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Alviðra frá Kagaðarhóli 22,28
3 Kristján Árni Birgisson Krafla frá Syðri-Rauðalæk 22,52
4 Herdís Björg Jóhannsdóttir Þórvör frá Lækjarbotnum 22,81
5 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Glitnir frá Skipaskaga 23,21
6 Matthías Sigurðsson Magnea frá Staðartungu 23,39
7 Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson Sæla frá Hemlu II 23,45
8 Kristján Árni Birgisson Sviðrir frá Reykjavík 23,55
9 Matthías Sigurðsson Gnúpur frá Dallandi 24,17