Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum „Helsta áskorunin er að koma fram og keppa á þessum árstíma“

  • 28. janúar 2026
  • Fréttir

Guðmunda Ellen í fjórgangskeppni Meistaradeildar. Ljósmynd: Carolin Giese - Meistaradeild

Viðtal við einn af nýliðum Meistaradeildar Líflands, Guðmundu Ellen

Guðmunda Ellen Sigurðardóttir er nýliði í Meistaradeild Líflands í vetur og keppir fyrir lið Sumarliðabæjar/Top Reiter. Þótt hún sé ný í þessari tilteknu deild er hún öllum hnútum kunnug, enda reynslumikill knapi sem hefur verið í fremstu röð frá unga aldri.

Hún fór vel af stað í fyrstu grein ársins, fjórgangi, sem fram fór á fimmtudaginn var. Þar tryggði hún sér sæti í A-úrslitum á Flaumi frá Fákshólum og endaði í fimmta sæti með einkunnina 7,50.

Blaðamaður Eiðfaxa sló á þráðinn til hennar til þess að spyrja út í veturinn framundan og árangurinn síðasta fimmtudag.

„Þetta leggst bara vel í mig, spennandi vetur framundan,“ segir Guðmunda um þátttökuna. Hún kveðst lítið spá í umgjörðina hverju sinni heldur halda sínu striki: „Ég reyni bara að gera mitt eins vel og ég get þannig að ég get ekki sagt að ég finni mikinn mun á því hvar ég er að keppa hverju sinni.“ Aðspurð um það hvort hún finni fyrir pressu að taka þátt í Meistaradeild Líflands.

Guðmunda mætir til leiks með sterkan hestakost en nefnir sérstaklega sinn helsta gæðing, Flaum, sem skilaði henni í úrslitin. „Ég tel mig vera sterkasta á Flaum af því að við þekkjum hvort annað út og inn,“ segir hún, en í aðrar greinar stefnir hún á að mæta með reynda hesta sem hún er enn að slípa saman samstarfið við.

Guðmunda ánægð með árangurinn Ljósmynd: Carolin Giese – Meistaradeild

Aðspurð um áskoranir vetrarins nefnir hún aðstæðurnar og tímasetninguna. „Helsta áskorunin er held ég að koma fram og keppa á þessum árstíma,“ segir hún en lætur það ekki á sig fá. Eftir góða byrjun í fjórgangi er stefnan sett áfram upp á við: „Að sjálfsögðu vill maður alltaf meira og gera betur! En ég var ánægð með hestinn, sérstaklega í úrslitunum og þá er mínu markmiði náð.“

Meistaradeild Líflands og svo margt fleira er í beinni útsendingu á EiðfaxaTV, næsta grein er slaktaumatölt sem fram fer fimmtudaginn 5.febrúar.

Tryggðu þér ársáskrift að EiðfaxaTV strax í dag og fylgstu með hestaíþróttum í beinni útsendingu!

 

„Draumur að rætast að fá að vera með í Meistaradeildinni“

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar