Hera frá Fornusöndum glæsilegasta folald sýningar í Skálakoti

  • 3. desember 2022
  • Fréttir
Fimmtánda árið í röð sem sýningin er haldin

Það var bjartur og fallegur dagur undir Eyjafjöllunum í dag þegar hin árlega folaldasýning í Skálakoti var haldin.  Alls voru 26 folöld sem tóku þátt, 11 hryssur og 15 hestar.

Þetta er fimmtánda árið í röð sem sýningin er haldin, og var hún sem oft áður vel sótt og margir glæsilegir gripir sem komu fram. Gestum er þökkuð heimsóknin og dómurum sem og sýnendum fyrir aðstoðina.

Efsta hestfolald sýningarinnar var Sjóður frá Skálakoti og efsta merfolaldið Hera frá Fornusöndum en hún var einnig valin glæsilegasta folald sýningarinnar.

 

Úrslit urðu sem hér segir:

Hryssur.

1.Hera frá Fornusöndum rauð
F: Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum
M: Svarta Perla frá Ytri-Skólum
Rækt. Magnús Geirsson
Eig. Margrét Þorgeirsdóttir.
2.Skjóla frá Skálakoti rauðstjörnótt
F: Skýr frá Skálakoti
M: Rjóð frá Saltvík
Rækt.og eig. Guðmundur Viðarsson.
3. Líf frá Fornusöndum brún
F: Skýr frá Skálakoti
M: Prinsessa frá Fornusöndum
Rækt.og eig. Kristín Ingileifsdóttir
4. Framtíð frá Fornusöndum rauð
F: Skýr frá Skálakoti
M: Freyja frá Flögu
Rækt.og eig. Finnbogi Geirsson.
5. Alrún frá Skálakoti rauðskjótt blesótt
F: Þráinn frá Flagbjarnarholti
M: Sylvía frá Skálakoti
Rækt.og eig. Þorgerður Guðmundsdóttir.

Hestar.

1. Sjóður frá Skálakoti rauðstjörnóttur
F: Skýr frá Skálakoti
M: Perla frá Eyjarhólum
Rækt.og eig. Guðmundur Viðarsson
2. Nn frá Hemlu rauðstjörnóttur
F: Viðar frá Skör
M: Gleði frá Hemlu
Rækt.og eig.Vignir og Lovísa.
3. Blakkur frá Fornusöndum brúnn
F: Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum
M: Svartanótt frá Fornusöndum
Rækt.og eig. Tryggvi Geirsson
4. Hrókur frá Fornusöndum brúnn
F: Jarl frá Árbæjarhjáleigu
M: Gerpla frá Fornusöndum
Rækt.og eig. Guðbergur Baldursson og Sandra Líf Þórðardóttir
5. Kormákur frá Fornusöndum móálóttur
F: Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum
M: Katla frá Fornusöndum
Rækt. Margeir Magnússon
Eig. Kolbrún Sóley Magnúsdóttir

Margeir Magnússon tekur við verðlaunum fyrir Heru frá Fornusöndum

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar