„Hestamenn afþakka stuðning ríkisins“

  • 1. mars 2026
  • Fréttir

Mynd: Christiane Slawik

Endalok verkefnisins Horses of Iceland?

Jelena Ohm, fyrrverandi verkefnastjóri Horses of Iceland, lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu markaðsverkefnisins í nýrri færslu sem hún birti á Facebook síðu sinni. Hún segir samstöðu innan hestageirans hafa brostið, sem varð til þess að ríkið dragi sig út úr samstarfinu um Horses of Icelend. „Hestaútflutningur hefur dregist saman og því vart tímabært að draga úr markaðssetningu,“ segir Jelena.

Markaðsverkefnið Horses of Iceland (HoI) hefur verið burðarás í alþjóðlegri landkynningu á íslenska hestinum síðan árið 2015. Verkefnið var sett á laggirnar að ósk Landssambands hestamannafélaga (LH) og Félags hrossabænda (FHB) sem „krónu á móti krónu“ verkefni, þar sem ríkið mætti framlagi greinarinnar.

Samkvæmt Jelenu Ohm, sem stýrði verkefninu um árabil hjá Íslandsstofu, er þessum stuðningi nú sjálfhætt þar sem hagsmunaaðilar innan greinarinnar virðast ekki lengur samstíga.

150 milljóna króna framlag í húfi

Í færslu sinni bendir Jelena á að ríkisframlagið hafi numið allt að 25 milljónum króna á ári, eða um 150 milljónum samtals á tæpum áratug. Auk fjármagnsins hafi Íslandsstofa lagt til verkefnastjóra í fullu starfi.

„Nú hefur verið ákveðið að þessum stuðningi verði hætt. Að minnsta kosti hafa grunnstofnanir greinarinnar dregið svo úr samstöðunni að ríkið telur ekki lengur forsendur til að halda verkefninu áfram,“ skrifar Jelena.

Hún nefnir að samstarfið hafi skilað íslenska hestinum miklum sýnileika, meðal annars í gegnum herferðir á borð við hina verðlaunuðu „OutHorse your Email“, sem vakti heimsathygli og tengdi hestinn beint við ímynd Íslands.

Herferðin „OutHorse your Email“, vakti heimsathygli og tengdi hestinn beint við ímynd Íslands. Mynd: HoI

Sóknarfærin mikil en útflutningur dregst saman

Jelena bendir á að heildarstærð alþjóðlegs hestaiðnaðar sé áætluð um 300 milljarðar Bandaríkjadala á ári. Þrátt fyrir að hlutur íslenska hestsins sé lítill, séu sóknarfærin gríðarleg, sérstaklega í hestatengdri ferðaþjónustu sem sé ein af mikilvægustu stoðum íslenskrar ferðaþjónustu. „Á sama tíma og hestaútflutningur hefur dregist saman er vart tímabært að draga úr markaðssetningu. Þvert á móti,“ segir hún og hvetur hagsmunaaðila til að endurskoða stöðuna og gleyma ekki mikilvægi samstarfsvettvangsins.

Málið er alvarlegt fyrir íslenska hestamennsku ef marka má orð Jelenu, þar sem fjármagn og fagleg markaðshugsun gæti glatast ef verkefnið leggst af.

Eiðfaxi mun fylgja þessari frétt eftir á næstu dögum og fjalla nánar um málið á vefnum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar