Hjalti og Hermann kynna bók sína norðan- og vestanlands

  • 4. desember 2025
  • Fréttir
Með frelsi í faxins hvin

Þeir félagar Hjalti Jón Sveinsson og Hermann Árnason slá í gandinn og halda í reisu til að kynna bók sína Með frelsi í faxins hvin á þremur mismunandi stöðum um landið, næstu daga.

Bókin hefur fengið góðar viðtökur og nú stendur til að kynna hana á eftirfarandi stöðum:

Skagfirðingabúð á Sauðárkróki föstudaginn 5.desember kl. 12-14
Pennanum/Eymundsson á Akureyri föstudaginn 5.desember kl. 17-18
Í Bónus í Borgarnesi laugardaginn 6.desember kl. 14-15.

Í bókinni er dregin upp heildstæð mynd af Hermanni Árnasyni, hestamanni frá Vík í Mýrdal, sem hefur margsinnis vakið athygli á landsvísu fyrir hugmyndir sínar, uppátæki og reynslu úr hestaferðum. Fjallað er um hvernig hann elur, temur og þjálfar hross sín, og sagt frá félögum hans og vinum sem lagt hafa honum lið á ferðalögum vítt og breitt um landið.

Sérstaklega er greint frá stórum ferðum sem Hermann hefur skipulagt, þar á meðal Stjörnureiðinni um landið endilangt, Flosareiðinni um slóðir Njáls sögu og Vatnareiðinni frá Hornafirði til Hellisheiðar. Í bókinni má finna fjölmargar ljósmyndir og kort sem gera lesendum kleift að fylgja eftir leiðangrunum og áskorunum sem ferðalangar mættu á allt að 40 daga reiðum.

Bókin er tileinkuð minningu Guðlaugs Gunnars Björnssonar, Gunna Björns, sem lést á síðasta degi hestaferðar hópsins Með frelsi í faxins hvin í ágúst 2024. Hann var nánasti félagi Hermanns um margra ára skeið og tók þátt í fjölda ferða með honum, fjölskyldum og vinum.

Nánari upplýsingar um bókina má finna á hermannsbok.is.

„Í huga mér í dag er fyrst og fremst þakklæti“

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar