Hjördís Halla leiðir keppni í barnaflokki

  • 7. júlí 2021
  • Fréttir

Hjördís Halla og Flipi eru efst í barnaflokki eftir forkeppni

Hjördís Halla Þórarinsdóttir er efst í barnaflokki þegar forkeppni er lokið. Hjördís sýndi hest sinn Flipa frá Bergsstöðum á Vatnsnesi og hlaut í einkunn 8,44. Skammt undan er Indriði Rökkvi Ragnarsson á Grifflu frá Grafarkoti með 8,40 í einkunn og í því þriðja er Kristín Eir Hauksdóttir Holaker á Ísari frá Skáney með 8,38 í einkunn.

 

Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Hjördís Halla Þórarinsdóttir / Flipi frá Bergsstöðum Vatnsnesi 8,44
2 Indriði Rökkvi Ragnarsson / Griffla frá Grafarkoti 8,40
3 Kristín Eir Hauksdóttir Holake / Ísar frá Skáney 8,38
4 Jólín Björk Kamp Kristinsdótti / Kjarval frá Hjaltastaðahvammi 8,28
5 Embla Moey Guðmarsdóttir / Skandall frá Varmalæk 1 8,22
6 Haukur Orri  Bergmann Heiðarsson / Abba frá Minni-Reykjum 8,20
7 Anton Már Greve Magnússon / Hnokki frá Eyri 8,19
8 Aþena Brák Björgvinsdóttir / Hrafntinna frá Lárkoti 8,11
9 Ari Osterhammer Gunnarsson / Bára frá Brimilsvöllum 8,09
10 Svava Rán Björnsdóttir / Gróp frá Grafarkoti 8,06
11 Matthildur Ingimarsdóttir / Merlin frá Flugumýri 7,90
12 Jörundur Óli Arnarsson / Perla frá Gili 7,74
13 Kristín Lára Eggertsdóttir / Stjarna frá Hjarðarfelli 7,62
14 Sól Jónsdóttir / Seygla frá Bjarnarhöfn 7,37

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar