Hestamannafélagið Sleipnir Hlökk og Ásmundur hlutu eina 10

  • 27. júní 2025
  • Fréttir
Niðurstöður úr forkeppni í slaktaumatölti í meistaraflokki á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna

Enn ein stjörnu sýningin hjá Ásmundi Erni Snorrasyni og Hlökk frá Strandarhöfði en þau hlutu 9,07 í einkunn og þ.á.m. 10 frá einum dómara fyrir frjálsa ferð.

Þau standa á toppnum í samanlögðum fjórgangsgreinum eins og er en tölt T1 er eftir í kvöld og þar eiga þeir Jakob Svavar Sigurðsson og Skarpur frá Kýrholti eftir að leika listir sínar og spennandi að sjá hvað þeir félagar gera. Ásmundur og Hlökk hafa þó ekki lokið keppni í dag og mæta einnig í töltið í kvöld.

Önnur eftir forkeppni er Helga Una Björnsdóttir og Ósk frá Stað með 8,40 en þær hafa verið að miklu flugi í þessari grein í vor. Þriðja er Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir á Hulin frá Breiðstöðum með 8,37 í einkunn en þetta er fyrsta keppnistímabilið þeirra saman og ekki annað hægt að segja en það byrji vel.

Hér fyrir neðan eru niðurstöður úr forkeppni í slaktaumatölti í meistaraflokki.

Mótið er sýnt í beinni á EiðfaxaTV.

Tölt T2 – Meistaraflokkur – Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði 9,07
2 Helga Una Björnsdóttir Ósk frá Stað 8,40
3 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Hulinn frá Breiðstöðum 8,37
4 Teitur Árnason Drangur frá Steinnesi 8,13
5 Jakob Svavar Sigurðsson Hrefna frá Fákshólum 8,10
6 Arnhildur Helgadóttir Frosti frá Hjarðartúni 8,10
7 Teitur Árnason Úlfur frá Hrafnagili 8,00
8 Jóhanna Margrét Snorradóttir Bútur frá Litla-Dal 7,90
9 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Flaumur frá Fákshólum 7,87
10 Gústaf Ásgeir Hinriksson Gýmir frá Skúfslæk 7,77
11-13 Hanne Oustad Smidesang Tónn frá Hjarðartúni 7,57
11-13 Carolin Annette Boese Freyr frá Kvistum 7,57
11-13 Glódís Rún Sigurðardóttir Ottesen frá Ljósafossi 7,57
14 Gústaf Ásgeir Hinriksson Hamar frá Varmá 7,50
15-16 Róbert Bergmann Gígjar frá Bakkakoti 7,43
15-16 Hrefna María Ómarsdóttir Kopar frá Álfhólum 7,43
17 Lea Schell Silfurlogi frá Húsatóftum 2a 7,27
18 Rakel Sigurhansdóttir Blakkur frá Traðarholti 7,23
19 Sigurður Vignir Matthíasson Safír frá Mosfellsbæ 7,20
20 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir Þór frá Hekluflötum 7,10
21 Benedikt Ólafsson Bikar frá Ólafshaga 6,93
22 Þórarinn Ragnarsson Valkyrja frá Gunnarsstöðum 6,90
23 Sigrún Rós Helgadóttir Hagur frá Hofi á Höfðaströnd 6,63

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar