Horft til framtíðar

  • 20. september 2024
  • Aðsend grein
Aðsend grein eftir Nönnu Jónsdóttur

Síðastliðið ár hefur deild/félag hrossabænda verið í samtali við Matvælaráðuneytið um málefni hrossaræktarinnar sem hefur m.a. leitt til gildistöku nýrrar reglugerðar nr. 1006/2024 um þróunarfé í hrossarækt. Er nú auglýst í fyrsta sinn eftir umsóknum til styrktar hrossaræktar á Íslandi í gegnum umsóknarkerfið Afurð. Vonumst við til þess að þetta fyrirkomulag sé komið til að vera.

Samhliða þessum breytingum verður Stofnverndarsjóður lagður niður í lok árs en innheimta í Stofnverndarsjóð hefur verið í lausu lofti síðastliðin ár. Eftirstöðvar sjóðsins eru áætlaðar um 70 millj. kr. og erum við að gera ráð fyrir að þær fari mestmegnis í uppfærslu á Worldfeng og/eða önnur verkefni sem fagráð telur aðkallandi fyrir íslenska hrossarækt.  Worldfengur er að sjálfsögðu okkur mjög ofarlega í huga og í forgangi. Þess vegna er mikilvægt að verk- og kostnaðaráætlun liggi fyrir sem fyrst vegna uppfærslu á Worldfeng ásamt því að stjórn Worldfengs skili af sér niðurstöðum þarfagreiningar sem hún hefur unnið að síðustu ár. Einnig mun stjórn deildar/félags hrossabænda fara yfir málefni Worldfengs hér innanlands og hvernig þeim verður best fyrir komið til framtíðar.

Það er fagnaðarefni að hrossaræktin er nú komin undir þróunarfé búgreina og munum við nýta næstu tvö ár til frekari samtals við Matvælaráðuneytið um málefni íslenska hestsins. Fróðlegt verður að sjá hver eftirspurn og þörf fyrir þróunarfé í hrossarækt verður en afar mikilvægt er fyrir okkur að fá yfir yfirsýn yfir það fyrir næstu samninga um þróunarfé, sem verða árið 2026. En það er alveg ljóst að mörg og brýn rannsóknarverkefni liggja fyrir í íslenskri hrossarækt.

Ég tel því gríðarleg sóknarfæri vera í kringum verkefni hestsins. Auka þarf skilvirkni og skýra línur, tryggja til framtíðar að málefni íslenska hestsins séu á borðum þeirra sem eru kjörnir af greininni hverju sinni.  Matvælaráðuneytinu vil ég þakka sérstaklega fyrir gott samstarf og hlakka til frekara samtals.

Hvet alla sem vinna að verkefnum sem auka þekkingu á hrossarækt, íslenska hrossastofninum og  stuðla að góðri velferð hestsins til að sækja um þróunarfé í gegnum afurd.is. Umsóknarfrestur er til 1. nóv. nk.

Virðingafyllst,

Nanna Jóndóttir, formaður fagráðs og deildar/félags hrossabænda

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar