Hrossaræktin 2025 – Ráðstefna
Hin árlega hrossaræktarráðstefna fagráðs í hrossarækt fer fram í reiðhöll Spretts, laugardaginn 8. nóvember og byrjar klukkan 13:00. Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og allt áhugafólk um hrossarækt er hvatt til að mæta.
Á dagskrá eru afar áhugaverðir fyrirlestrar um áhrif erfða á gangtegundir hestsins og árangur af skimun og úrvali gegn spatti í íslenska hestinum, yfirferð um hrossaræktarárið og verðlaunaveitingar.
Dagskrá hrossaræktarráðstefnunnar er eftirfarandi:
13:00 Setning – Nanna Jónsdóttir formaður fagráðs og deildar hrossabænda hjá Bændasamtökum Íslands
13:10 Hrossaræktarárið 2025 – Þorvaldur Kristjánsson
13:30 Heiðursverðlaunahryssur fyrir afkvæmi 2025 og afkvæmahestar heiðraðir
13:50 Verðlaunaveitingar:
-Verðlaun, hæsta litförótta hryssa ársins í kynbótadómi
-Verðlaun, knapi með hæstu hæfileikaeinkunn ársins (án áverka)
-Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Alhliða hross (aldursleiðrétt)
-Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Klárhross (aldursleiðrétt)
Kaffihlé
14:15 Heiðrún Sigurðardóttir – Erfðafræðilegur grunnur gangtegunda íslenska hestsins: Niðurstöður, hagnýting og næstu skref
14:40 Sigríður Björnsdóttir – Spatt í íslenska hestinum og árangur af skimun fyrir sjúkdómnum
15:25 Hvatningarverðlaun – ungur kynbótaknapi
15:30 Viðurkenningar fyrir tilnefnd ræktunarbú ársins 2025
Fundarslit um 16:15
Allir velkomnir!
Þá er minnt á Fagþing hrossaræktarinnar sem fer fram daginn áður, þann 7. nóvember. Allir eru velkomnir á þann viðburð einnig en þar er ætlunin að fara yfir félagskerfi hrossaræktarinnar og fleiri brennandi málefni. Auglýsing og skráning fyrir þann viðburð er á eftirfarandi tengli:
https://www.bondi.is/frettir/dagskra-a-fagthingi-hrossaraektarinnar
Skagfirðingur hlýtur æskulýðsbikar LH 2025
Fagþing hrossaræktarinnar