Íslandsmót byrjar í dag

Mótið byrjar á keppni í fjórgangi í meistaraflokki og eftir kaffihlé byrjar ungmennaflokkurinn. Um kvöldið verður síðan keppt í gæðingaskeiði í meistara- og ungmennaflokki og kemur í ljós hverjir hljóta fyrstu Íslandsmeistaratitlana.
Mótið verður sýnt í beinni á EiðfaxaTV.
Íslandsmótið er líka síðasta mótið sem landsliðsþjálfararnir eru að horfa til við val á hópnum sem fer á Heimsmeistaramót íslenska hestsins 4.-11. ágúst í Sviss. Hópurinn verður tilkynntur 11. júlí en tólf knapar keppa í fullorðinsflokki á HM og fimm í ungmennaflokki. Þar að auki eiga sjö þeirra titil að verja.
Dagskrá dagsins
Miðvikudagur 25. júní
12:00 Fjórgangur V1 meistara 1-15
13:25 Vallarhlé
13:35 Fjórgangur V1 meistara 16 – 30
15:00 Kaffihlé
15:30 Fjórgangur V1 ungmenni 1 – 14
16:50 Vallarhlé
17:00 Fjórgangur V1 ungmenni 15-28
18:20 Matur
19:00 Gæðingaskeið meistara
20:15 Gæðingaskeið ungmenna