Hestamannafélagið Sleipnir Íslandsmótið í beinni á EiðfaxaTV

  • 26. júní 2025
  • Fréttir
Dagskrá dagsins í dag á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna

Íslandsmót fullorðinna og ungmenna heldur áfram í dag en keppt verður í fimmgangi og endar dagurinn á kappreiðum.

Mótið tókst nokkuð vel í gær þrátt fyrir mikla bleytu en það má hrósa Sleipnisfólki fyrir flotta umgjörð á mótinu. Gæðingaskeiðið kláraðist í gærkvöldi þar sem þeir Árni Björn Pálsson og Kristján Árni Birgisson hömpuðu sitthvorum titlum.

Hér fyrir neðan er dagskrá dagsins en fyrir þá sem ekki komast á Selfoss í dag geta horft á mótið í beinni á EiðfaxaTV.

Fimmtudagur 26. júní
13:00 Fimmgangur F1 meistara 1-16
14:30 Vallarhlé
14:40 Fimmgangur F1 meistara 17-34
16:10 Vallarhlé/Kaffihlé
16:30 Fimmgangur F1 ungmenni 1-10
17:30 Vallarhlé
17:40 Fimmgangur F1 ungmenni 11-21
18:35 Matur
19:15 250m skeið 1 og 2 sprettur
150m skeið 1 og 2 sprettur

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar