Heimsmeistaramót Íslendingar tróna á toppnum í 250 metra skeiði

  • 12. desember 2024
  • Fréttir

Konráð og Kastor Mynd: Bert Collet

Áhugaverðir alþjóðlegir stöðulistar

Á heimasíðu FEIF er að finna alþjóðlega stöðulista ársins í ár byggða á einkunnagjöf í forkeppni alþjóðlegum mótum (WR). Þar eru tvær hæstu einkunnir/tími knapa og hests lagðar saman og meðaltal þeirra raðar þeim niður á stöðulista.

Á næsta ári er framundan Heimsmeistaramót íslenska hestsins í Sviss og því áhugavert að skoða þessa stöðulista sem gefa fyrirheit um það hvers er að vænta á því móti. Ljóst er þó að við eigum ekki von á því að sjá öll þessi pör á því móti auk þess að fleiri knapar munu leggja meiri metnað og orku í næsta keppnistímabil með heimsmeistaramótið í huga.

250 metra skeið

Í þessari lengstu grein skeiðkappreiðanna eru það íslenskir knapar sem trjóna á toppnum. Konráð Valur Sveinsson og Kastor frá Garðshorni á Þelamörk eru efsti á þessum lista en skammt á eftir þeim er Sigursteinn Sumarliðason á Krókusi frá Dalbæ. Þriðja besta árangur ársins á Þorgeir Ólafsson á Rangá frá Torfunesi, í fjórða sætinu er Gústaf Ásgeir Hinriksson á Sjóði frá Þóreyjarnúpi og fimmta besta árangurinn á Árni Björn Pálsson á Ögra frá Horni.

Ríkjandi heimsmeistari í þessari grein er Elvar Þormarsson sem sigraði keppinauta sína eftirminnilega á Fjalladís frá Fornusöndum. Fjalladís er nú með nýjan knapa, Sigurð Óla Kristinsson, sem vafalaust setur stefnuna á HM en hann keppti fyrir hönd Danmerkur á Norðurlandamóti og vann þar gæðingaskeið. Elvar sagði í viðtali við Eiðfaxa að hann stefni með Djáknar frá Selfossi á HM í fimmgang. Líklegt verður því að teljast að nýr Heimsmeistari verði krýndur í þessari grein á næsta ári.

Þeir Sigursteinn Sumarliðason, Þorgeir Ólafsson og Gústaf Ásgeir Hinriksson eru allir í landsliðshópi Íslands en það eru þeir Árni Björn Pálsson og Konráð Valur Sveinsson ekki.

P1 – 250 m
# Knapi Hestur Tími
1 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk 21,515
2 Sigursteinn Sumarliðason Krókus frá Dalbæ 21,535
3 Þorgeir Ólafsson Rangá frá Torfunesi 21,785
4 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sjóður frá Þóreyjarnúpi 21,935
5 Árni Björn Pálsson Ögri frá Horni 22,01

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar