Hestamannafélagið Sleipnir Konráð með bestu tímana í báðum greinum

  • 26. júní 2025
  • Fréttir
Fyrri umferð kappreiða lokið á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna

Konráð Valur Sveinsson er með bestu tímana í bæði 150 og 250 m. skeiðinu. Í 150 m. skeiðinu var hann á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu II með tímann 14,10 sek og í 250 m. skeiðinu á Kastori frá Garðshorni á Þelamörk með 21,81 sek.

Hér fyrir neðan eru niðurstöður úr fyrri umferð kappreiðanna en seinni umferðin fer fram á laugardaginn kl. 10:00.

Í ungmennaflokki er Sigurbjörg Helgadóttir á Hörpurós frá Helgatúni með besta tímann í 150 m. skeiði eða 14,83 sek. og í 250 m. skeiðinu er það Sara Dís Snorradóttir á Djarfi frá Litla-Hofi með 22,87 sek.

Skeið 150m P3

Meistaraflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 14,10
2 Hans Þór Hilmarsson Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði 14,31
3 Þorgeir Ólafsson Grunur frá Lækjarbrekku 2 14,36
4 Þórarinn Ragnarsson Bína frá Vatnsholti 14,48
5 Ingibergur Árnason Flótti frá Meiri-Tungu 1 14,68
6 Árni Björn Pálsson Þokki frá Varmalandi 14,70
7 Unnur Sigurpálsdóttir Elva frá Miðsitju 15,53
8 Guðmundur Björgvinsson Svala frá Rauðalæk 15,55
9 Sigurður Vignir Matthíasson Tryggur frá Selfossi 16,10
10-13 Daníel Gunnarsson Skálmöld frá Torfunesi 0,00
10-13 Sigurður Heiðar Birgisson Tign frá Ríp 0,00
10-13 Birna Olivia Ödqvist Salka frá Fákshólum 0,00
10-13 Benjamín Sandur Ingólfsson Gullborg frá Læk 0,00

Ungmennaflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Sigurbjörg Helgadóttir Hörpurós frá Helgatúni 14,83
2-3 Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir Gosi frá Staðartungu 0,00
2-3 Ingunn Rán Sigurðardóttir Mist frá Einhamri 2 0,00

Skeið 250m P1

Meistaraflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk 21,81
2 Sigursteinn Sumarliðason Krókus frá Dalbæ 22,38
3 Daníel Gunnarsson Kló frá Einhamri 2 22,46
4 Sigursteinn Sumarliðason Liðsauki frá Áskoti 22,57
5 Árni Björn Pálsson Ögri frá Horni I 22,59
6 Sigurður Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk 22,65
7 Ásmundur Ernir Snorrason Númi frá Árbæjarhjáleigu II 24,33
8 Hjörleifur Helgi Sveinbjarnarson Gjafar frá Hrafnsstöðum 24,75
9 Hanne Oustad Smidesang Vinátta frá Árgerði 25,24
10-13 Þorgeir Ólafsson Rangá frá Torfunesi 0,00
10-13 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sjóður frá Þóreyjarnúpi 0,00
10-13 Þorgils Kári Sigurðsson Flugdís frá Kolsholti 3 0,00
10-13 Larissa Silja Werner Hylur frá Kjarri 0,00

Ungmennaflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Sara Dís Snorradóttir Djarfur frá Litla-Hofi 22,87
2 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Alviðra frá Kagaðarhóli 22,91
3 Herdís Björg Jóhannsdóttir Þórvör frá Lækjarbotnum 23,06
4 Kristján Árni Birgisson Krafla frá Syðri-Rauðalæk 23,23
5 Kristján Árni Birgisson Sviðrir frá Reykjavík 23,55
6 Matthías Sigurðsson Magnea frá Staðartungu 23,60
7 Matthías Sigurðsson Gnúpur frá Dallandi 24,17
8-9 Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson Sæla frá Hemlu II 0,00
8-9 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Glitnir frá Skipaskaga 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar