Hestamannafélagið Sleipnir Kristján Árni og Súla Íslandsmeistarar annað árið í röð

  • 25. júní 2025
  • Fréttir
Niðurstöður úr gæðingaskeiði í ungmennaflokki á Íslandsmóti fullorðna og ungmenna.

Kristján Árni Birgisson og Súla frá Kanastöðum vörðu Íslandsmeistaratitil sinn þegar þau unnu gæðingaskeiðið í ungmennaflokki með 7,46 í einkunn. Í viðtali á EiðfaxaTV sagðist Kristján að þau Súla stefndu á heimsleika en spennandi verður að sjá hvort þau verði í hópnum þegar landsliðið verður kynnt þann 11. júlí.

Í öðru sæti varð Matthías Sigurðsson og Magnea frá Staðartungu með 7,21 og í því þriðja Guðný Dís Jónsdóttir á Ásu frá Fremri-Gufudal með 7,04.

Ungmennaflokkur – Gæðingaskeið
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Kristján Árni Birgisson Súla frá Kanastöðum 7,46
2 Matthías Sigurðsson Magnea frá Staðartungu 7,21
3 Guðný Dís Jónsdóttir Ása frá Fremri-Gufudal 7,04
4 Védís Huld Sigurðardóttir Sölvi frá Stuðlum 7,00
5 Lilja Dögg Ágústsdóttir Stanley frá Hlemmiskeiði 3 6,67
6 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Glitnir frá Skipaskaga 6,67
7 Fanndís Helgadóttir Sproti frá Vesturkoti 6,42
8 Þórgunnur Þórarinsdóttir Djarfur frá Flatatungu 6,29
9 Hulda María Sveinbjörnsdóttir Jarlhetta frá Torfastöðum 6,29
10 Þórey Þula Helgadóttir Kjalar frá Hvammi I 6,29
11 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Orrustuþota frá Lækjamóti II 6,25
12 Matthías Sigurðsson Hlekkur frá Saurbæ 6,17
13 Herdís Björg Jóhannsdóttir Skorri frá Vöðlum 6,13
14 Herdís Björg Jóhannsdóttir Þórvör frá Lækjarbotnum 4,96
15 Lilja Rún Sigurjónsdóttir Heiða frá Skák 4,17
16 Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson Sæla frá Hemlu II 3,50
17 Eva Kærnested Hvanndal frá Oddhóli 3,17
18 Ingunn Rán Sigurðardóttir Mist frá Einhamri 2 3,08
19 Sigurður Baldur Ríkharðsson Myrkvi frá Traðarlandi 2,67
20 Ragnar Snær Viðarsson Léttir frá Þóroddsstöðum 0,50
21 Sara Dís Snorradóttir Kvistur frá Reykjavöllum 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar