Kristján og Konráð bæta við sig titlum

Konráð Valur Sveinsson og Kastor frá Garðshorni á Þelamörk Mynd: Gunnhildur Ýrr
Aðstæður voru nú ekki eins góðar og í kappreiðunum í gær þegar keppni í 100 m. skeiði fór fram.
Konráð Valur Sveinsson og Kastor frá Garðshorni á Þelamörk voru með besta tímann 7,40 sek. Annar titill þeirra á mótinu en þeir unnu 250 m. skeiðið í gær og settu heimsmet. Rétt á eftir þeim var Ingibergur Árnason og Sólveig frá Kirkjubæ með næst besta tímann 7,47 sek og Sigurður Sigurðarson og Tromma frá Skúfslæk voru með þriðja besta tímann eða 7,51 sek.

Kristján Árni Birgisson og Krafla frá Syðri-Rauðalæk
Annar Íslandsmeistaratitill Kristjáns
Kristján Árni Birgisson nældi sér í annan Íslandsmeistaratitil sinn á mótinu en á miðvikudag varð hann Íslandsmeistari í gæðingaskeiði í ungmennaflokki og í dag í 100 m. skeiði í ungmennaflokki en hann sat Kröflu frá Syðri-Rauðalæk og fóru þau 100 m. á tímann 7,59 sek.
Í öðru sæti varð Guðrún Lilja Rúnarsdóttir á Glitni frá Skipaskaga með tímann 7,84 og í því þriðja varð Sara Dís Snorradóttir á Djarfi frá Litla-Hofi með 7,84.
Hér fyrir neðan eru niðurstöður úr 100 m. skeiðinu en fyrstu A úrslit dagsins byrja núna kl. 14:00.
Flugskeið 100m P2
Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk 7,40
2 Ingibergur Árnason Sólveig frá Kirkjubæ 7,47
3 Sigurður Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk 7,51
4 Konráð Valur Sveinsson Flugsvinn frá Ytra-Dalsgerði 7,64
5 Sveinn Ragnarsson Kvistur frá Kommu 7,69
6 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sjóður frá Þóreyjarnúpi 7,71
7 Þorgils Kári Sigurðsson Faldur frá Fellsási 7,73
8 Þorgeir Ólafsson Hátíð frá Sumarliðabæ 2 7,77
9 Þorgeir Ólafsson Rangá frá Torfunesi 7,79
10 Benjamín Sandur Ingólfsson Fáfnir frá Efri-Rauðalæk 7,79
11 Hinrik Ragnar Helgason Stirnir frá Laugavöllum 7,83
12 Þorgils Kári Sigurðsson Flugdís frá Kolsholti 3 7,85
13 Daníel Gunnarsson Kló frá Einhamri 2 7,92
14 Þórarinn Ragnarsson Freyr frá Hraunbæ 7,96
15 Þorgeir Ólafsson Væta frá Leirulæk 7,98
16 Hjörvar Ágústsson Orka frá Kjarri 8,05
17 Ísólfur Ólafsson Gnýr frá Brekku 8,11
18-20 Sveinbjörn Hjörleifsson Prinsessa frá Dalvík 0,00
18-20 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir Straumur frá Hríshóli 1 0,00
18-20 Sigurður Heiðar Birgisson Tign frá Ríp 0,00
Ungmennaflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Kristján Árni Birgisson Krafla frá Syðri-Rauðalæk 7,59
2 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Glitnir frá Skipaskaga 7,84
3 Sara Dís Snorradóttir Djarfur frá Litla-Hofi 7,84
4 Kolbrún Sif Sindradóttir Gná frá Borgarnesi 7,86
5 Herdís Björg Jóhannsdóttir Þórvör frá Lækjarbotnum 7,95
6 Matthías Sigurðsson Gnúpur frá Dallandi 8,11
7 Hekla Rán Hannesdóttir Embla frá Litlu-Brekku 8,28
8 Kristján Árni Birgisson Súla frá Kanastöðum 8,34
9 Ingunn Rán Sigurðardóttir Mist frá Einhamri 2 8,42
10 Lilja Dögg Ágústsdóttir Stanley frá Hlemmiskeiði 3 8,49
11 Sigurður Dagur Eyjólfsson Gjöf frá Ármóti 8,72
12 Lilja Rún Sigurjónsdóttir Heiða frá Skák 10,15
13-14 Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir Gosi frá Staðartungu 0,00
13-14 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Alviðra frá Kagaðarhóli 0,00