Krókus og Sigursteinn fóru hraðast í ár

  • 19. september 2024
  • Fréttir
Stöðulisti i 250 metra skeiði

Nú er öllum mótum lokið á Íslandi og því vert að kíkja á stöðulista ársins og hverjir hafa náð hæstu einkunnum í hringvallargreinum eða verið fljótastir í skeiðgreinum.

Samkvæmt stöðulista er það Sigursteinn Sumarliðason á Krókusi frá Dalbæ sem á besta tíma ársins í 250 metra skeiði hér á landi, 21,35 sekúndur. Þeir tryggðu sér með þeim tíma Íslandsmeistaratitil í þessari lengstu vegalengd skeiðgreina.

Næst besta tíma ársins á Konráð Valur Sveinsson á Kastori frá Garðshorni á Þelamörk, 21,50 sekúndur. Settur á Landsmóti hestamanna þar sem þeir fóru með sigur af hólmi. Þriðja besta tímann á Þorgeir Ólafsson á Rangá frá Torfunesi á tímanum 21,60 sekúndur.

Stöðulistinn er birtur með fyrirvara um það að allir mótshaldarar hafa skilað inn niðurstöðum frá sínum mótum.

# Knapi Hross Tími Mót
1 Sigursteinn Sumarliðason IS2008187654 Krókus frá Dalbæ 21,35 IS2024FAK216 – Íslandsmót ungmenna og fullorðinna (WR)
2 Konráð Valur Sveinsson IS2014164066 Kastor frá Garðshorni á Þelamörk 21,50 IS2024LM0211 – Landsmót hestamanna (WR)
3 Þorgeir Ólafsson IS2010266201 Rangá frá Torfunesi 21,60 IS2024FAK216 – Íslandsmót ungmenna og fullorðinna (WR)
4 Ingibergur Árnason IS2009286105 Sólveig frá Kirkjubæ 21,64 IS2024FAK192 – Reykjavíkurmeistaramót Fáks WR (WR)
5 Gústaf Ásgeir Hinriksson IS2013155474 Sjóður frá Þóreyjarnúpi 21,86 IS2024FAK216 – Íslandsmót ungmenna og fullorðinna (WR)
6 Sigurður Sigurðarson IS2012282581 Tromma frá Skúfslæk 21,97 IS2024FAK216 – Íslandsmót ungmenna og fullorðinna (WR)
7 Árni Björn Pálsson IS2013177274 Ögri frá Horni I 21,97 IS2024GEY164 – WR Suðurlandsmót – Geysir (WR)
8 Daníel Gunnarsson IS2014235261 Kló frá Einhamri 2 21,98 IS2024FAK216 – Íslandsmót ungmenna og fullorðinna (WR)
9 Konráð Valur Sveinsson IS2006186758 Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 22,07 IS2024GEY164 – WR Suðurlandsmót – Geysir (WR)
10 Ævar Örn Guðjónsson IS2015280466 Vigdís frá Eystri-Hól 22,22 IS2024GEY164 – WR Suðurlandsmót – Geysir (WR)
11 Daníel Gunnarsson IS2013167180 Smári frá Sauðanesi 22,30 IS2024FAK192 – Reykjavíkurmeistaramót Fáks WR (WR)
12 Viðar Ingólfsson IS2010186505 Ópall frá Miðási 22,53 IS2024FAK192 – Reykjavíkurmeistaramót Fáks WR (WR)
13 Þorgils Kári Sigurðsson IS2015176620 Faldur frá Fellsási 22,64 IS2024FAK192 – Reykjavíkurmeistaramót Fáks WR (WR)
14 Þorgeir Ólafsson IS2015281512 Hátíð frá Sumarliðabæ 2 22,70 IS2024SPR225 – Metamót Spretts 2024
15 Matthías Sigurðsson IS2010265314 Magnea frá Staðartungu 22,80 IS2024FAK178 – Gæðingamót Fáks – Landsmótsúrtaka 2024
16 Kristófer Darri Sigurðsson IS2012125111 Gnúpur frá Dallandi 22,81 IS2024FAK216 – Íslandsmót ungmenna og fullorðinna (WR)
17 Jóhann Kristinn Ragnarsson IS2011188668 Gnýr frá Brekku 22,82 IS2024GEY161 – Opið WR Íþróttamót – Geysir (WR)
18 Sigursteinn Sumarliðason IS2014288804 Drottning frá Þóroddsstöðum 22,88 IS2024GEY164 – WR Suðurlandsmót – Geysir (WR)
19 Jón Ársæll Bergmann IS2012157470 Rikki frá Stóru-Gröf ytri 23,27 IS2024SPR225 – Metamót Spretts 2024
20 Helgi Gíslason IS2014201512 Hörpurós frá Helgatúni 23,31 IS2024FAK178 – Gæðingamót Fáks – Landsmótsúrtaka 2024
21 Daníel Gunnarsson IS2012164511 Sigur frá Sámsstöðum 23,32 IS2024GEY164 – WR Suðurlandsmót – Geysir (WR)
22 Hanne Oustad Smidesang IS2014265664 Vinátta frá Árgerði 23,34 IS2024FAK178 – Gæðingamót Fáks – Landsmótsúrtaka 2024
23 Birgitta Bjarnadóttir IS2010266201 Rangá frá Torfunesi 23,54 IS2024SPR225 – Metamót Spretts 2024
24 Guðmar Freyr Magnússon IS2007265005 Embla frá Litlu-Brekku 23,55 IS2024SKA207 – Punktamót og skeiðleikar 1
25 Sara Sigurbjörnsdóttir IS2012284366 Dimma frá Skíðbakka I 23,58 IS2024FAK192 – Reykjavíkurmeistaramót Fáks WR (WR)
26 Jakob Svavar Sigurðsson IS2011187880 Jarl frá Kílhrauni 23,92 IS2024GEY161 – Opið WR Íþróttamót – Geysir (WR)
27 Bjarni Jónasson IS2016165005 Eðalsteinn frá Litlu-Brekku 23,92 IS2024SPR225 – Metamót Spretts 2024
28 Ævar Örn Guðjónsson IS2012125111 Gnúpur frá Dallandi 24,07 IS2024SPR225 – Metamót Spretts 2024
29 Ólafur Örn Þórðarson IS2017265101 Kleópatra frá Litla-Dal 24,16 IS2024GEY164 – WR Suðurlandsmót – Geysir (WR)
30 Sveinbjörn Hjörleifsson IS2015265191 Prinsessa frá Dalvík 24,46 IS2024SKA169 – WR Hólamót – Íþróttamót Skagfirðings og UMSS (WR)

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar