Landsamband hestamanna Lágmörk á Íslandsmót fullorðinna og ungmenna

  • 10. mars 2026
  • Fréttir
Keppnisnefnd LH hefur samþykkt lágmörk fyrir Íslandsmót 2026

Keppnisnefnd LH hefur samþykkt lágmörk fyrir Íslandsmót 2026 sem haldið verður í Hafnarfirði 17.-21. júní. Lágmörkin haldast að þessu sinni að mestu óbreytt frá fyrra ári og við ákvörðunina er horft er til þess að keppendafjöldi sé svipaður og á undanförnum teimur Íslandsmótum. Undantekning eru þó tímar í 150m og 250m. skeiði í fullorðinsflokki sem eru rýmkaðir sökum þess að mótið er haldið fyrr á árinu en áður.

Lágmörkum inn á mótið þarf að ná á þessu keppnisári í löglegu utanhússmóti.

Lágmörk á Íslandsmót 2026 eru sem hér segir:

F1 Fimmgangur

Fullorðnir 6.80

Ungmenni 6.10

V1 Fjórgangur

Fullorðnir 7.00

Ungmenni 6.50

T1 Tölt

Fullorðnir 7.40

Ungmenni 6.60

T2 Slaktaumatölt

Fullorðnir 7.00

Ungmenni 6.20

PP1 Gæðingaskeið

Fullorðnir 7.10

Ungmenni 5.90

P2 100 m skeið

Fullorðnir 8.00 sek

Ungmenni 9.00 sek

P3 150 m skeið

Opinn flokkur 16.00 sek

Ungmenni 17.00 sek

P1 250 m skeið

Opinn flokkur 25.00 sek

Ungmenni 26.00 sek

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar