Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Lið Hjarðartúns með örugga forystu

  • 8. febrúar 2026
  • Fréttir

Liðsmenn Hjarðartúns f.v. Jakob Svavar Sigurðsson, Hand Þór Hilmarsson, Arnhildur Helgadóttir og Helga Una Björnsdóttir. Ljósmynd: Carolin Giese/Lina Images

Mikil spenna í Meistaradeild Líflands, viðtal við liðsmenn Hjarðartúns.

Það er til mikils að vinna í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum og lítið sem má útaf bregða í harðri keppni. Til þess að standa uppi sem sigurvegari í einstaka greinum þurfa knapar og hestar alltaf að eiga sýnar allra bestu frammistöðu, en ætli liðin sér sigur í heildarstigakeppninni er svigrúmið fyrir mistök hjá knöpum nánast ekkert. Hvert stig telur í harðri baráttu liðanna þar sem dagsformið ræður ríkjum.

Hjarðartún fer vel af stað

Lið Hjarðartúns hefur farið feykilega vel af stað á keppnistímabilinu. Liðið hefur verið stigahæst í báðum þeim greinum sem lokið er og situr nú á toppi deildarinnar með 82 stig. Markmiðið virðist skýrt hjá liðsmönnum: að endurheimta titilinn sem þau unnu síðast árið 2020.

Lið Hjarðartúns skipa:

Helga Una Björnsdóttir (liðsstjóri)

Arnhildur Helgadóttir

Elvar Þormarsson

Hans Þór Hilmarsson

Jakob Svavar Sigurðsson

Risarnir fylgja fast á eftir

Í öðru sæti, skammt á eftir toppliðinu, er lið Top Reiter/Sumarliðabæjar. Þar fer lið með mikla sigurhefð, enda hefur Top Reiter unnið deildina fjórum sinnum á síðasta áratug og Sumarliðabær stóð uppi sem sigurvegari í fyrra. Við samruna þessara tveggja stórliða varð til öflugt lið sem enginn má afskrifa í baráttunni um titilinn.

Í þriðja sæti fylgir svo lið Ganghesta/Margrétarhofs sem sýnt hefur stöðugleika og er til alls líklegt þegar líður á tímabilið.

 

Staðan í liðakeppninni:

Hjarðartún: 82 stig

Top Reiter/Sumarliðabær: 61,5 stig

Ganghestar/Margrétarhof: 56 stig

Hrímnir/Hest.is: 51,5 stig

Hestvit/Árbakki: 51,5 stig

ÍB bílar: 39,5 stig

Viðtal eftir slaktaumatöltið

Að lokinni keppni í slaktaumatölti ræddi Hulda Geirsdóttir við þau Arnhildi Helgadóttur, Hans Þór Hilmarsson og Helgu Unu Björnsdóttur úr liði Hjarðartúns. Þau fóru yfir árangurinn í slaktaumatölti og keppni í fimmgangi sem er næsta grein í deildinni.

Hægt er að horfa á viðtalið í spilaranum hér að neðan:

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar