Samskipadeildin - Áhugamannadeild Spretts Lið Hrafnsholts, Pure North og Tölthesta

  • 14. desember 2021
  • Fréttir
Liðakynning – Áhugamanndeild Equsana 2022

Á næstu vikum verða liðin sem keppa í Equsana deildinni kynnt en þau eru 15 talsins. Deildin hefst 3. febrúar nk. og ljóst er að keppnin hefur aldrei verið jafn spennandi og í ár.

Í þessari fyrstu kynningum kynnum við lið Hrafnsholts, Pure North og Tölthesta.

Lið Hrafnsholts: Samansafn af stórskemmtilegum sunnlendingum.

Liðsmenn eru:
Jónas Már Hreggviðsson
Aldur: 49 ára
Hestamannafélag: Sleipnir
Starfsgrein: Húsasmiður

Elísabet Gísladóttir
Aldur: 47 ára
Hestamannafélag: Sleipnir
Starfsgrein: Dagforeldri

Sandra Steinþórsdóttir
Aldur: 35 ára
Hestamannafélag: Sleipnir
Starfsgrein: Kvikmyndagerðarkona

Jessica Dahlgren
Aldur: 46 ára
Hestamannafélag: Sleipnir
Starfsgrein: Vinnur á elliheimili og rekur hestaleigu og reiðskóla.

Jón Haraldsson
Aldur: 47 ára
Hestamannafélag: Háfeti
Starfsgrein: vélfræðingur

Þjálfari: Sigríður Pjetursdóttir, hestamannafélaginu Sleipni

Lið Pure North Recycling: Pure North Recycling endurvinnur plast með umhverfisvænum orkugjöfum og er jarðvarminn þar í aðalhlutverki. Í dag er Pure North Recycling eina fyrirtækið á Íslandi sem endurvinnur plast að fullu. Í endurvinnslunni er óhreinum plastúrgangi breytt í plastpallettur sem seldar eru til framleiðslu á nýjum plastvörum hér á landi og erlendis.

Liðsmenn eru:
Sigurður Halldórsson
Aldur: 45 ára
Hestamannafélag: Sprettur
Starfsgrein: Framkvæmdastjóri Pure North Recycling

Sævar Örn Sigurvinsson
Aldur: 50 ára
Hestamannafélag: Sleipnir
Starfsgrein: Rófu- og ferðaþjónustubóndi

Karl Áki Sigurðarson
Aldur: 52 ára
Hestamannafélag: Sleipnir
Starfsgrein: Smíðar

Sigurður Halldórsson
Aldur: 40 ára
Hestamannafélag: Sprettur
Starfsgrein: Framkvæmdastjóri Tæknideilda, Skaginn 3X

Gísli Guðjónsson
Aldur: 32 ára
Hestamannafélag: Sleipnir
Starfsgrein: Íslenskukennari

Þjálfari: Sigursteinn Sumarliðason, hestamannafélaginu Sleipni

 

Lið Tölthesta:

Liðsmenn eru:
Anna Kristín Kristinsdóttir
Aldur:35 ára
Starfsgrein: Upplýsingaöryggisstjóri
Hestamannafélag: Sprettur

Sævar Eggertsson
Aldur: 33 ára
Starfsgrein: Steypustöðvarstjóri
Hestamannafélag: Borgfirðingur

Sverrir Einarsson
Aldur: 62 ára
Starfsgrein: Útfararstjóri
Hestamannafélag: Sprettur

Rúnar Freyr Rúnarsson
Aldur: 36 ára
Starfsgrein: Rafvirki/háspennuvirki
Hestamannafélag: Sprettur

Rósa Valdimarsdóttir
Aldur: 66 ára
Starfsgrein: Matreiðslumaður
Hestamannafélag: Fákur

Þjálfari: Sigurbjörn Bárðarson, hestamannafélaginu Fák

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar