Lífland opnar verslun á Selfossi

  • 30. september 2022
  • Fréttir
Opnunarhátíð á morgun, laugardag, 1. október.

Lífland lýkur upp dyrum að nýrri verslun á Selfossi en þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. „Ný verslun er í björtum og rúmgóðum húsakynnum að Austurvegi 69. Í tilefni opnunarinnar verður slegin upp opnunarhátíð laugardaginn 1. október fyrir gesti og gangandi sem vilja fagna með okkur.“

Boðið verður upp á opnunartilboð og glaðning fyrir börn. Þá verða í boði grillaðar pylsur, flatkökur, kaffi og kaka frá kl. 12:00 – 15:00 auk þess sem Karlakór Hreppamanna stígur á stokk og tekur nokkur lög að sunnlenskum sveitasið. Að auki verður einn heppinn vinningshafi dreginn úr „Lífland Selfossi“ hópnum á Facebook sem vinnur 25.000 króna úttekt í versluninni.

„Við bindum vonir við að nærumhverfi taki nýrri verslun Líflands fagnandi og hlökkum til að taka á móti sem flestum á opnunarhátíðinni,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Verslunin mun bjóða upp á fjölbreytt vöruúrval af búrekstrar- og landbúnaðarvöru svo sem áhöldum, hreinlætisvörum, fóðri og bætiefnum. Hjá Líflandi er einnig breitt úrval af girðingarefnum, meindýravörum, gæludýravörum, útivistarfatnaði og allt til hestamennsku svo sem reiðfatnaður, skeifur, fóður, reiðtygi og undirburður.

Verslunarstjóri á Selfossi verður Guðbjörg Jónsdóttir en hún er fyrrverandi kúabóndi og hefur m.a. unnið að félagsmálum bænda í gegnum árin. Með henni verða Sjöfn Finnsdóttir og Guðrún Margrét Valsteinsdóttir.

Með nýju versluninni verða verslanir Líflands alls sex talsins, en fyrir eru verslanir á Akureyri, Blönduósi, Borgarnesi, Reykjavík og Hvolsvelli.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar