Lilja Rún efst í Meistaradeild Ungmenna og Top Reiter

  • 8. febrúar 2026
  • Fréttir
Meistaradeild Ungmenna og TopReiter 2026: Slippfélags-fjórgangurinn

Fyrsta mótið af fimm í Meistaradeild Ungmenna og TopReiter 2026 fór fram laugardaginn 7. febrúar í Samskipahöllinni hjá Hestamannafélaginu Sprett. Keppt var í fjórgangi V1 og var mikill spenningur fyrir fyrsta keppnisdeginum. Skráð til leiks voru 39 sterk pör og mikið í húfi. Fjórgangurinn var í boði Slippfélagsins og í tilkynningu frá mótshöldurum þakka þau fyrir þann stuðning.

Það kom í hlut Lilju Rúnar Sigurjónsdóttur á hestinum Draupni frá Dimmuborg að sigra með einkunnina 6,97. Stutt á eftir í 2. sæti var Elva Rún Jónsdóttir á Goða frá Garðabæ með 6,90 og 3. sætið hlaut Ragnar Snær Viðarsson á Byl frá Kvíarhóli með 6,80. Gaman er að segja frá því að þau þrjú eru öll að koma úr unglingaflokki og verður spennandi að fylgjast með þeim ásamt öllum nýjum og eldri knöpum.

Spenna í liðakeppninni

Liðakeppnin var jafn spennandi en svo fór að tvö lið voru jöfn að stigum eftir fjórganginn: lið Kastalabrekku og Miðás/Miklholts með 76 stig.

Næsta grein er fimmgangur og fer hann fram í glæsilegri nýrri reiðhöll Sörlafélaga í Hafnarfirði þann 1. mars n.k.

Staðan í liðakeppninni

Lið Stig
Kastalabrekka 76
Miðás/Miklholt 76
Hestvit/Lækjarbrekka 67
Hjarðartún 63,5
Helgatún/Hestaval 50
Armar/Ellert Skúlason 48,5
Holtsmúli 47,5
Grindjánar 38
Bobcat 33,5
Husky Iceland/Réttverk 31
Einhamar/Brekka 29

Staðan í einstaklingskeppninni

Lilja Rún Sigurjónsdóttir – 12 stig

Elva Rún Jónsdóttir – 10 stig

Ragnar Snær Viðarsson – 8 stig

Eva Kærnested – 7 stig

Helena Rán Gunnarsdóttir – 6 stig

Anton Óskar Ólafsson – 5 stig

Ída Mekkín Hlynsdóttir – 4 stig

Anika Hrund Ómarsdóttir – 3 stig

Sigurbjörg Helgadóttir – 2 stig

Fanndís Helgadóttir – 1 stig

 

Niðurstöður úrslita

 

A-úrslit

1. Lilja Rún Sigurjónsdóttir / Draupnir frá Dimmuborg (6,97)

2. Elva Rún Jónsdóttir / Goði frá Garðabæ (6,90)

3. Ragnar Snær Viðarsson / Bylur frá Kvíarhóli (6,80)

4. Eva Kærnested / Styrkur frá Skák (6,70)

5. Helena Rán Gunnarsdóttir / Goði frá Ketilsstöðum (6,40)

B-úrslit

6. Anton Óskar Ólafsson / Gná frá Hólateigi (6,57)

7. Ída Mekkín Hlynsdóttir / Röskva frá Ey I (6,47)

8. Anika Hrund Ómarsdóttir / Sólmyrkva frá Álfhólum (6,40)

9. Sigurbjörg Helgadóttir / Sólon frá Sælukoti (6,33)

10. Fanndís Helgadóttir / Hraunhamar frá Ragnheiðarstöðum (6,33)

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar