Mælingar á reiðgötum

Myndir: LH
Undanfarnar 6 vikur hefur Landssamband hestamannafélaga verið að mæla umferð á hestamanna á einni af fjölmörgum reiðleiðum á félagssvæði Fáks í Víðidal.
Mælirinn sem er notaður er tiltölulega einfaldur og var staðsettur á ljósastaur við reiðgötu. Hann var í þeirri hæð að hann mælir einungs knapa sem fer framhjá á hesti. Samskonar mælar eru notaðir víða til að mæla umferð gangandi og hjólandi vegfarenda. Mælirinn var staðsettur á staur, rétt við gömlu göngubrúnna á hinum svokallaða Tryppahring.
Á 45 dögum var 7003 sinnum riðið fram hjá þessum tiltekna staur, eða að meðaltali 146 sinnum á dag. Í Fák eru fjölmargar leiðir og því má ætla að þetta sé einungis tölfræði sem nær yfir brot af þeirri daglegu umferð sem er á reiðleiðum á Fákssvæðinu.
Næst verður mælir settur upp hjá hestamannafélaginu Herði í Mosfellsbæ og verður þar í nokkrar vikur.
„Við vonumst til þess að fleiri svona mælar geti farið í notkun og hvetjum þau hestamannafélög sem hafa áhuga á að skoða það nánar að hafa samband við Jónínu Sif á skrifstofu LH,“ segir í tilkynningu frá LH.

Hér á myndinni þar sem appelsínuguli punkturinn er má sjá hvar mælirinn var staðsettur.