Meistaradeild Líflands & æskunnar – umsóknarfresti lýkur í dag!

  • 20. september 2023
  • Tilkynning
Lokafrestur til að sækja um í Meistaradeild Líflands og æskunnar er í dag miðvikudaginn 20. september.

Deildin verður haldin í áttunda sinn veturinn 2024. Þátttakendur eru unglingar á aldrinum  13-17 ára (fæðingarár 2007-2011).

 

Áhugasamir knapar eru hvattir til að sækja um og skila inn keppnisárangri ársins 2023. Þar er átt við árangur á löglegum mótum. Allir sækja um sem einstaklingar en þátttakendur velja sig sjálfir saman í lið. Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2023. Umsóknareyðublað má finna á vef deildarinnar, www.mdeild.is og þar er einnig að finna ýmsar nytsamlegar upplýsingar.

 

Hvert lið skipar fjóra knapa og keppa þeir allir í öllum keppnisgreinum og reynir það nokkuð á hestakost og er mikil og krefjandi skuldbinding.

 

Keppt verður í: fjórgangi V1, fimmgangi F1, tölti T1, gæðingafimi, slaktaumatölti T2 og gæðingaskeiði PP1.

 

Reglur deildarinnar verða kynntar vel á fundi allra þátttakenda og aðstandenda þeirra í haust og þátttakendur skrifa undir knapasamning um þátttöku í deildinni. Þar verða einnig öll liðin kynnt til leiks.

 

Stjórn Meistaradeildar Líflands & æskunnar

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar