Meistaradeild Líflands og æskunnar og Ístölt í beinni um helgina
Okkar efnilegustu knapar eru þátttakendur í Meistaradeild Líflands og æskunnar sem fram fer á sunnudag.
Tveir viðburðir eru í beinni útsendingu á EiðfaxaTV um helgina.
Á morgun, laugardaginn 7.febrúar, er sýnt beint frá Ístölti sem fram fer í Fredrikshavn í Danmörku. Þar mæta margir sterkir hestar og knapar og hefst útsending klukkan 14:00.
Á sunnudaginn er svo komið að ungu knöpunum okkar í Meistaradeild Líflands og æskunnar sem fram fer í Lýsishöllini í Víðidal í Reykjavík. Keppni hefst klukkan. 12:00.
Tryggðu þér áskrift og fylgstu með öllum þeim fjölmörgu viðburðum sem framundan eru á EiðfaxaTV.
Til minningar um Ragnheiði Hrund
Nýr landsliðshópur kynntur
Ráslisti fyrir fjórgang Meistaradeildarinnar
Viking Masters mótaröðin í fullum gangi