Miðill í sviðsljósinu á Melgerðismelum

  • 10. febrúar 2026
  • Fréttir

Ræktendur efstu hestfolalda. F.v. Einar Gíslason, Sverrir Reynisson og Rósberg Óttasson

Hin árlega folaldasýning Náttfara

Það var líf og fjör á Melgerðismelum síðastliðinn laugardag, 7. febrúar, þegar Hrossaræktarfélagið Náttfari hélt sína árlegu folaldasýningu. Alls mættu 33 glæsileg folöld til leiks og var dómari sýningarinnar Eyþór Einarsson. Dæmt var eftir IceFoal kerfi FEIF fyrir folöld og unghross.

Merfolöld

Í flokki hryssna sigraði Ára frá Hrafnagili, dóttir Miðils og Hraunu frá Hrafnagili. Ræktendur hennar eru þau Jón og Berglind á Hrafnagili. Ára sýndi mikla mýkt og útgeislun sem skilaði henni efsta sætinu.

Efstu hryssur:

Ára frá Hrafnagili (u. Miðli frá Hrafnagili og Hraunu frá Hrafnagili) – Rækt. Jón og Berglind, Hrafnagili.

Berlín frá Brúnum (u. Óðni frá Oddstöðum og Framtíð frá Garðshorni) – Rækt. Einar, Brúnum.

Sól frá Syðra Felli (u. Pensli frá Hvolsvelli og Nínu frá Naustum) – Rækt. Sveinn Ingi, Syðra Felli.

Ræktendur efstu merfolalda. F.v. Jón Elvar Hjörleifsson, Einar Gíslason og Sveinn Ingi Kjartansson

Hestfolöld

Í hestaflokki var það Blakkur frá Brúnum sem stóð uppi sem sigurvegari, en hann er einnig, líkt og sigurvegari í hryssuflokki, undan Miðli frá Hrafnagili og undan hryssunni Skáldu frá Brúnum. Ræktendur eru Einar og Hugrún á Brúnum.

Efstu hestar:

Blakkur frá Brúnum (u. Miðli frá Hrafnagili og Skáldu frá Brúnum) – Rækt. Einar og Hugrún, Brúnum.

Kóngur frá Bringu (u. Skarpi frá Kýrholti og Villu frá Bringu) – Rækt. Jóna og Sverrir, Bringu.

Sólfari frá Söguey (u. Sólfaxa frá Herríðarhóli og Snerpu frá Úlfsstöðum) – Rækt. Rósberg Óttarsson.

Eins og hefð er fyrir hjá Náttfara fengu áhorfendur að leggja orð í belg og velja „Fallegasta folaldið“. Að þessu sinni hlaut Höfði frá Syðra Felli flest atkvæði, en ræktandi hans er Ingimar Atli á Syðra Felli.

Ingimar Atli Sveinsson tók við verðlaunum fyrir glæsilegasta folald að mati áhorfenda.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar