„Mikil vinna en afar skemmtileg“

  • 9. nóvember 2025
  • Sjónvarp Fréttir

F.v. Bergur Jónsson, Elin Holst og Olil Amble

Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar ræktunarbú ársins 2025

Á fagráðsstefnu hrossaræktarinnar sem fram fór í gær voru veitt hin ýmsu verðlaun fyrir afrek ársins á kynbótabrautinni sem nánar verður fjallað um hér á vef Eiðfaxa á næstu dögum.

Lokaverðlaun ráðstefnunnar voru að útnefna hvaða ræktendur hlytu hinn eftirsótta titil, Ræktendur ársins. Af þeim tólf búum sem tilnefnd voru í flokknum voru það þau Olil Amble og Bergur Jónsson sem útnefnd voru sem ræktendur ársins fyrir ræktun sína að Ketilsstöðum og Syðri-Gegnishólum og er það í sjöunda sinn sem þessu magnaða hestafólki hlotnast sá heiður.

Á árinu voru sýnd frá þeim 15 hross sem hlutu í aldursleiðrétta meðaleinkunn 8,41. Lista yfir alla þá gæðinga má skoða hér neðar í fréttinni en þar að auki hlaut Álfhildur frá Syðri-Gegnishólum Glettubikarinn, því hún stóð efst heiðursverðlauna hryssa á árinu með 128 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins og fimm sýnd afkvæmi.

Að verðlaunaafhendingu lokinni tók Arnar Bjarki viðtal við þau Berg og Olil sem horfa má á hér í myndbandsspilaranum að neðan.

Hross sýnd frá Syðri-Gegnishólum/Ketilsstöðum árið 2025

Nafn Einkunn
Hugsýn frá Ketilsstöðum 8,63
Krafla frá Ketilsstöðum 8,59
Drangur frá Ketilsstöðum 8,58
Knörr frá Ketilsstöðum 8,37
Áshildur frá Syðri-Gegnishólum 8,35
Kondór frá Ketilsstöðum 8,31
Halur frá Ketilsstöðum 8,28
Eldjárn frá Syðri-Gegnishólum 8,24
Vignir frá Syðri-Gegnishólum 8,24
Sigð frá Syðri-Gegnishólum 8,24
Klettagjá frá Ketilsstöðum 8,12
Hugar frá Ketilsstöðum 8,04
Djarfur frá Ketilsstöðum 8,02
Hildar frá Syðri-Gegnishólum 7,99
Vattar frá Ketilsstöðum 7,89

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar