Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum „Núna er þetta bara upp á við“

  • 21. febrúar 2026
  • Sjónvarp Fréttir
Viðtal við Þorgeir Ólafsson sigurvegara í fimmgangi í Meistaradeild Líflands

Það var kampakátur Þorgeir Ólafsson sem mætti í viðtal til Huldu Geirsdóttur að loknum A-úrslitum í fimmgangi í Meistaradeild Líflands í gærkvöldi.

Hann hafði líka yfir miklu að gleðjast, því hann stóð efstur í gær á hryssunni Blíðu frá Bergi, sem er á sjöunda vetri undan Skýr frá Skálakoti og Rót frá Bergi. Ræktendur hennar og eigendur eru hjónin á Bergi þau Jón Bjarni Þorvarðarson og Anna Dóra Markúsdóttir.

Blíða er með háan kynbótadóm með aðaleinkunnina 8,62 en keppnisreynsla hennar var ekki mikil fyrir kvöldið. Þá keypti Þorgeir sig inn í keppnina og var því uppboðsknapi, en þetta var sögulegur sigur í Meistaradeild Líflands því slíkt hefur ekki gerst áður að knapi sem ekki keppir fyrir lið vinni grein.

Hann fer yfir þetta allt saman í góðu viðtali sem horfa má á hér að neðan.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar