Ný stjórn Borgfirðings

Ný stjórn hestamannafélagsins Borgfirðings. F.v. Elísabet Ýr, Eyþór Jón, Friðrika, Haukur Þór, Þorsteinn, Heiða Dís og Ísólfur. Á myndina vantar Ólaf Axel Björnsson.
Í gærkvöldi fór fram almennur félagsfundur hjá hestamannafélaginu Borgfirðingi en boðað var til fundarins í síðustu viku í kjölfar þess að tillaga um vantraust á stjórn hafði borist þar sem yfir 10% félagsmanna rituðu nafn sitt undir.
Áður hafði fyrrum formaður félagsins, Eyþór Jón Gíslason, sagt af sér sem formaður félagsins vegna erfiðar samvinnu við stjórnarmeðlimi. „Undanfarin misseri hefur verið mjög erfitt að vinna að framförum í félaginu þar sem ákveðnir aðilar í stjórn vinna markvisst á móti mér og mikil orka og tími fer í árekstra og óþarfa. Ég tek það fram að það eru líka félagar í stjórn sem hafa unnið með mér hörðum höndum og hafa staðið sig frábærlega og hefði ég ekki getað staðið í þessu án þeirra. Það er ekki hægt að vinna gott starf ef stjórn er ekki samtaka og flest mál og fundir fara í leiðindi og rifrildi. Ég sé ekki fram á að ná neinum árangri ef þetta heldur svona áfram og hef ég því ákveðið að segja af mér sem formaður Hestamannafélags Borgfirðings,“ ritaði Eyþór m.a. í stöðu uppfærslu á Facebookarsíðu sinni.
Um annað hundrað manns var mætt á fundinn í gær og ljóst að þungur tónn var undirliggjandi. Vantrauststillagan kom aldrei til atkvæðagreiðslu þar sem stjórnarmenn sem enn sátu sögðu af sér áður en til þess kom. Fór fram stjórnarkjör á nýrri stjórn til bráðabirgða eða fram að næsta aðalfundi félagsins.
Eftirfarandi einstaklinga mynda því nýja stjórn hestamannafélagsins Borgfirðings, Elísabet Ýr Egilsdóttir, Eyþór Jón Gíslason, Friðrika Ásmundsdóttir, Þorsteinn Hjaltason, Heiða Dís Fjeldsted, Ísólfur Ólafsson, Ólafur Axel Björnsson og Haukur Þór Hauksson sem jafnframt er nýr formaður.