Bændasamtök Íslands Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ

  • 24. mars 2026
  • Fréttir

Stjórn deildar hrossabænda. F.v. Ólafur Sigurgeirsson, Guðný Helga Björnsdóttir, Jón Vilmundarson, Ólafur Þórisson, Rúnar Þór Guðbrandsson, Agnar Þór Magnússon og Þórdís Ingunn Björnsdóttir

Deild hrossabænda fundaði í dag á Búnaðarþingi Bændasamtaka Íslands í dag. 

Um 40 fulltrúar voru mættir á fundinn en m.a. annars á dagskrá fundarins var að kjósa nýjan formann og fulltrúa í stjórn deildar hrossabænda. Nanna Jónsdóttir, fyrrum formaður deildarinnar, bauð sig ekki fram til formannsetu aftur en í framboði til formanns var Ólafur Þórisson hrossabóndi í Miðkoti sem er nú nýr formaður. Rúnar Þór Guðbrandsson kemur inn sem varamður í stað Ragnhildar Loftsdóttur. Annars er stjórnin óbreytt.

Ný stjórn lýtur svona út:

Formaður: Ólafur Þórisson, Guðný Helga Björnsdóttir, Jón Vilmundarson, Ólafur Sigurgeirsson, Agnar Þór Magnússon

Varamenn: Sonja Líndal Þórisdóttir, Þórdís Ingunn Björnsdóttir, Rúnar Þór Guðbrandsson kemur inn í stað Ragnhildar Loftsdóttur.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar