Ný stjórn Félags Tamningamanna
Aðalfundur Félags Tamningamanna (FT) var haldinn rafrænn þann 18.desember síðastliðinn þar sem m.a. kosið var í nýja stjórn félagsins.
Þær Fanney Dögg Indriðadóttir og Rúna Björg Vilhjálmsdóttir gengu úr stjórn og er þeim þakkað fyrir frábært og óeigingjarnt starf í þágu félagsins. Nýjar inn í stjórn félagsins komu þær Henna Johanna Sirén og Unnur Rún Sigurpálsdóttir.
Félag tamningamanna var stofnað árið 1970 og samanstendur af faglærðum tamningamönnum, þjálfurum og reiðkennurum sem hafa áratuga reynslu og þekkingu á íslenska hestinum og flestum þeim þáttum sem viðkemur honum eins og markaðsmálum.
Eitt af aðalmarkmiðum FT er að stuðla að réttri og góðri tamningu og meðferð hestsins með heilbrigði og velferð hans að leiðarljósi. Einnig að fræða og upplýsa um eðli hestsins. Þeir sem eru í félaginu eru oftar en ekki einnig ræktendur og heilt yfir fólk sem brennur af ástríðu fyrir íslenska hestinum.
Aðalstjórn félagsins er því nú skipur á eftirfarandi hátt;
Aðalstjórn
Sylvía Sigurbjörnsdóttir – Formaður
Þórarinn Eymundsson – Varaformaður
Henna Johanna Sirén
Johannes Amplatz – Ritari
Mette Mannseth – Meðstjórnandi
Varastjórn
Unnur Rún Sigurpálsdóttir – FT Norður
Hrafnhildur Helga Guðmundsdóttir – FT Suður
Ný stjórn Félags Tamningamanna
„Núna er þetta bara upp á við“