Ný vefsíða hjá LH

Vefurinn er enn í vinnslu þar sem að mörgu er að huga á vef sem er jafn yfirgripsmikill og vefsíðan er um þessar mundir. Nýr vefur mun skalast betur en eldri vefur á mismunandi tækjum. Auk þess sem hægt er að aðlaga undirsíður vefsins betur að því efni sem við þurfum og viljum koma á framfæri.
„Vefurinn er nú aðgengilegur á léninu lh.is sem við fengum nýlega að gjöf frá Verkfræðistofunni EFLU og viljum við senda þeim okkar bestu þakkir fyrir. Gamli vefurinn lhhestar.is verður áfram virkur um stund meðan gengið er frá flutningi gagna á milli og meðan notendur venjast nýju viðmóti,“ segir í tilkynningu frá LH.
Hægt er að skoða nýju vefsíðuna HÉR.
„Við viljum gjarnan heyra af því ef notendur rekast á villur á vefnum, svo hægt sé að bæta úr því sem fyrst. Vinsamlegast sendið slíkar ábendingar á joninasif@lhhestar.is“