Nýr þáttur af „Uppgjörinu“

Íslandsmót fullorðinna og ungmenna hófst í gær á keppni í fjórgangi og lauk með keppni í gæðingaskeiði.
Arnar Bjarki Sigurðsson gerði upp daginn í nýjum þætti af „Uppgjörinu“. Með honum var Steindór Guðmundsson íþróttadómari, Halldór Victorsson yfirdómari mótsins og Oddur Ólafsson framkvæmdastjóri HorseDay. Einnig komu þeir Kristján Árni Birgisson og Árni Björn Pálsson í stutt spjall en þeir unnu sitthvorn flokkinn í gæðingaskeiði í gærkvöldi.
Hægt er að horfa á þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan. Sýnt er beint frá Íslandsmótinu á EiðfaxaTV.