Opið fyrir skráningar WR Reykjavíkurmeistaramót Fáks

Opnað hefur verið fyrir skráningar á opna WR Reykjavíkurmeistaramót Fáks sem fram fer dagana 12.- 18. júní n.k. Á Facebook má finna viðburðinn undir nafninu „Reykjavíkurmeistaramót Fáks WR 12. – 18. júní“ og þar má finna ýmsar upplýsingar um mótið, svo það er um að gera að melda sig eða merkja við „going“ á þann viðburð til að fylgjast með fréttum.
Skráningar í greinar fara fram á vef Sportfengs, IS2023FAK149 og henni lýkur á miðnætti 5. júní.
Allar spurningar varðandi skráningar á mótið skal senda skriflega á skraning@fakur.is.
Skráningar sem berast eða eru ógreiddar eftir að skráningarfresti lýkur
verða ekki teknar gildar.
Skráum í tíma svo vandamál sem upp geta komið í skráningu séu leyst áður en frestur
rennur út.
Nokkur atriði sem keppendur skulu hafa í huga:
Nái skráningar ekki 25 í flokki eru eingöngu riðin A-úrslit.
Nái skráningar ekki 10 í flokki fellur flokkurinn niður.
Keppendur eru ábyrgir fyrir skráningu sinni.
Mótið er World Ranking mót og mikilvægt að keppendur hafi kynnt sér nýjustu útgáfu
af keppnisreglum. Sjá nánar á vef LH og FEIF.
Skráningargjöld eru eftirfarandi:
9.000 kr – meistaraflokkur og ungmennaflokkur (nema PP1, T3, V2, F2 8.500 kr)
8.500 kr – 1. og 2. flokkur
6.500 kr – barna- og unglingaflokkur
6.500 kr – 150m, 250m og 100m flugskeið
Greinar og flokkar í boði:
T1 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur.
T2 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur.
T3 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
T4 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
T7 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 2. flokkur.
V1 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur.
V2 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
V5 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 2. flokkur.
F1 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur.
F2 – unglingaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
P1 250m skeið – meistaraflokkur, ungmennaflokkur.
P2 100m skeið – meistaraflokkur, 1. flokkur, ungmennaflokkur, unglingaflokkur.
P3 150m skeið – meistaraflokkur, ungmennaflokkur.
PP1 gæðingaskeið – meistaraflokkur, ungmennaflokkur, unglingaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
Það verður að venju mikill hestakostur og glæsileg umgjörð sem einkenna munu Víðidalinn í
Reykjavík þessa mótsdaga og allir velkomnir að koma og fylgjast með heimsklassa sýningum
í öllum keppnisgreinum, styrkleika- og aldursflokkum!
Framkvæmdastjóri: Einar Gíslason
Mótsstjóri: Hilda Karen Garðarsdóttir
Vallarstjóri: Þórir Örn Grétarsson
Yfirdómari: Sigurður Emil Ævarsson
Velkomin í Víðidalinn!