Óskasteinn hæst dæmdur í Lingen

Elisa Graf heldur í Óskastein vom Habichtswald ljósmynd/Aðsend
Kynbótasýningin FIZO Lingen fór fram í Þýskalandi í vikunni og lauk í gær með yfirlitssýningu alls komu fram 61 hross og þar af 54 í fullnaðardómi. Dómarar voru þau Marlise Grimm, Heimir Gunnarsson og Jens Füchtenschnieder.
Hæst dæmda hross sýningarinnar er Óskasteinn vom Habichtswald sem sýndur var af Elisu Graf en hún er eigandi ásamt Philip Graf, ræktandi er Maria-Magdalena Siepe-Gunkel.
Óskasteinn er sjö vetra gamall undan Teig vom Kronshof og Ósk frá Klængsseli en sú var undan Hrafni frá Holtsmúla og Drottningu frá Steinum. Óskasteinn hlaut 8,46 fyrir sköpulag, 8,48 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,47. Þar ber hæst 9,0 fyrir bak og lend, tölt og samstarfsvilja.
Njála vom Kronshof er hæst dæmda hryssan á þessari sýningu með 8,31 fyrir sköpulag, 8,43 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,39. Sýnandi hennar var Frauke Schenzel en Kronshof GbR er ræktandi og eigandi ásamt Önju Egger-Meier. Faðir Njálu er Hnokki frá Fellskoti og móðir Glódís vom Kronshof.
Af öðrum eftirtektarverðum hrossum má nefna fimm vetra gamla stóðhestinn Óríon vom Kronshof sem hlaut 8,31 í aðaleinkunn undan Óðni vom Habichtswald og Emmu frá Kronshof.
Öll hross á sýningunni raðað eftir aðaleinkunn